top of page

Kæranda gert að greiða málskostnað í ríkissjóð

Writer: Ritstjóri
Ritstjóri
Jul 24
1 min read

Kærunefnd útboðsmála hefur, svo vitað sé, í fyrsta sinn úrskurðað kæranda til að greiða málskostnað í ríkissjóð. UHA Umhverfisþjónustu ehf. var gert að greiða 150 þúsund krónur vegna kæru félagsins yfir útboði Fjarðabyggðar á úrgangsþjónustu.


Kæran laut að ákvörðun Fjarðabyggðar um að velja tilboð Kubbs ehf. í verkefnið „Úrgangsþjónusta í Fjarðabyggð 2025–2029“. UHA krafðist meðal annars að samningur sveitarfélagsins og Kubbs yrði lýstur óvirkur, að tilboð Kubbs yrði metið ógilt og að nefndin léti uppi álit á skaðabótaskyldu. Öllum kröfum félagsins var hafnað.


Í úrskurðinum segir að kröfugerð og málatilbúnaður UHA hafi verið „óskýr og sundurlaus“. Kæran hafi verið bersýnilega tilefnislaus og tilgangur hennar óskiljanlegur. Jafnframt var bent á að félagið hefði áður lagt fram tvær kærur vegna sama útboðs og að kröfum þess hefði verið hafnað í báðum málunum.


Kærunefndin taldi því óhjákvæmilegt að beita heimild í lögum um opinber innkaup til að láta kæranda greiða málskostnað í ríkissjóð. Heimildin á við þegar kæra er bersýnilega tilefnislaus eða höfð uppi í þeim tilgangi að tefja framgang opinberra innkaupa.


Úrskurðurinn var kveðinn upp 4. júní 2026 og birtur á vef Stjórnarráðsins 9. júlí.



bottom of page