top of page


Útboðsgögn og Svansvottun
Svansvottaðar byggingar njóta sífellt meiri vinsælda á Íslandi og hefur uppbygging þeirra aukist verulega á undanförnum árum. Þann 5. mars stóðu Svanurinn og Iðan fræðslusetur fyrir málþingi um Svansvottaðar byggingar þar sem fjallað var um reynslu, áskoranir og lausnir í slíkum verkefnum. Á málþinginu komu saman fulltrúar frá byggingargeiranum, umsækjendur, leyfishafar, ráðgjafar, verktakar og verkkaupar, til að miðla reynslu og ræða hvernig best sé að vinna að verkefnum sem

Ritstjóri
6 days ago


Eina tilboðið frá Icelandair langt yfir áætlun
Eitt tilboð barst í útboði Vegagerðarinnar fyrir áætlunarflug milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Tilboðið kom frá Icelandair og er verulega yfir kostnaðaráætlun verkkaupa. Samkvæmt opnunarskýrslu , sem birt var á heimasíðu Vegagerðarinnar, var áætlaður verktakakostnaður 1,341 milljarðar króna en tilboð Icelandair nemur 3,527 milljörðum króna, sem er um 2,2 milljörðum yfir áætlun. Útboðið var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu í janúar og frestur til að skila inn tilboðum rann ú

Ritstjóri
Feb 26


Skiptar skoðanir um skilmála útboðs
Nýlega auglýsti Consensa, fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar, eftir tilboðum um rekstur og uppbyggingu heilsuræktaraðstöðu við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Um er að ræða sérleyfi sem tekur til uppbyggingar og reksturs heilsuræktaraðstöðu sem styður við markmið sveitarfélagsins um bætt heilbrigði, vellíðan og aðgengi íbúa að fjölbreyttri hreyfingu og íþróttastarfsemi. Útboðið er auglýst í framhaldi þess að sambærilegt útboð var auglýst árið 2025 og kært til kærunefndar útboðsmála.

Ritstjóri
Feb 25


Leiðbeiningar OECD um baráttu gegn ólögmætu samráði í opinberum innkaupum
Þann 16. febrúar 2026 gaf OECD út Leiðbeiningar um baráttu gegn ólögmætu samráði í opinberum innkaupum út á íslensku. Leiðbeiningarnar fela í sér safn leiðbeininga og góðra starfshátta sem ætlað er að styðja opinbera starfsmenn við að fyrirbyggja, greina og tilkynna ólögmætt samráð í opinberum innkaupaferlum. Leiðbeiningarnar styðja við innleiðingu á tilmælum OECD um baráttu gegn samráði í opinberum útboðum [OECD-LEGAL-0396]. Þær innihalda almennar meginreglur sem hægt er að

Ritstjóri
Feb 18


Skortur á ESPD leiðir ekki sjálfkrafa til útilokunar
Birgir Örn Birgisson, lögfræðingur Consensa Dómstóll Evrópusambandsins komst að þeirri niðurstöðu í máli C-812/24, LIPOR og PreZero Portugal , sem birt var 22. janúar 2026, að skortur á ESPD-hæfisyfirlýsingu leiði ekki sjálfkrafa til útilokunar. Dómurinn skýrir jafnframt að móðurfélag sem hyggst nýta 100% dótturfélag sitt við framkvæmd samnings telst reiða sig á getu annars aðila í skilningi 63. gr. tilskipunar 2014/24. Málsatvik í stuttu máli LIPOR bauð út þjónustusamning um

Ritstjóri
Feb 15


Fjórir aðilar buðu í byggingu hjúkrunarheimilis á Húsavík
Tilboð voru opnuð í byggingu nýs hjúkrunarheimilis á Húsavík á mánudag. Tilboð bárust frá fjórum aðilum: Eik fasteignafélagi, Pekron ehf., Reitir atvinnuhúsnæði og Þingvangi ehf. Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir óskaði á síðasta ári fyrir hönd félags- og húsnæðismálaráðuneytisins eftir leigutilboðum fyrir húsnæði undir hjúkrunarheimili á Húsavík. Verkefnið snýr að því byggja og fullgera hjúkrunarheimili við Auðbrekku 2 sem ríkið mun síðan leigja með langtímaleigusamningi. Nýja

Ritstjóri
Feb 13


Góð mæting á fund SI um útboðsmál í mannvirkjaiðnaði
Dagmar Sigurðardóttir, lögmaður og eigandi Lagastoðar og sérfræðingur í opinberum innkaupum . Góð mæting var á fræðslufund SI fyrir félagsmenn í mannvirkjaiðnaði um útboðsmál sem fór fram í gær. Fundurinn fór fram bæði í Húsi atvinnulífsins og í beinu streymi. Á fundinum fór Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, yfir samspil útboðsréttar og samkeppnisréttar og hlutverk SI. Þá fór Dagmar Sigurðardóttir, lögmaður og eigandi Lagastoðar og sérfræðingur í opinberum innk

Ritstjóri
Feb 10


Takmörk miðstýringar
Erlendur Ingi Jónsson, doktor í hagfræði Einn af vanmetnustu hugsuðum tuttugustu aldarinnar er að mati undirritaðs hagfræðingurinn Thomas Sowell . Ein af lykilhugmyndum hans er að þekking í samfélagi sé dreifð en ekki miðlæg. Hún er bundin einstaklingum, aðstæðum, tíma og stað, og engin miðlæg stofnun eða hópur sérfræðinga hefur aðgang að þessari staðbundnu þekkingu í heild sinni. Markaðir, stofnanir og hefðir virka sem upplýsingakerfi sem safna saman þessari dreifðu þekkingu

Ritstjóri
Feb 6


Námskeið í samningatækni
Félag atvinnurekenda og Vörustjórnunarfélag Íslands efna til námskeiðs í samningatækni 11. febrúar næstkomandi. Námskeiðið er sérsniðið að þörfum sölu- og innkaupafólks . Námskeiðið er hálfur dagur, frá kl. 9 til 12, og fer fram í fundarsal FA í Skeifunni 11. Farið verður yfir aðferðir og undirbúning samningaviðræðna við innlenda og erlenda aðila bæði í innkaupum og sölustarfi. Fjallað verður um lykilatriði aðferða við gerð tilboða fram að lokuðum samningi. Farið verður yfir

Ritstjóri
Jan 30


Innkaupaþjónusta
Birgir Örn Birgisson, sérfræðingur Consensa. Innkaupaþjónusta er sérhæfð ráðgjafarþjónusta sem veitt er opinberum aðilum með það að markmiði að tryggja að kaupandi standi, að loknu innkaupaferli, með samning sem verndar hagsmuni hans á samningstímanum. Þjónustan snýst þannig ekki fyrst og fremst um framkvæmd ferlisins sem slíks, heldur um þá niðurstöðu sem ferlið á að skila. Þjónusta verktakafyrirtækja felst hins vegar í því að reisa mannvirki sem kaupandi eignast og getur ný

Ritstjóri
Jan 29


Undirbúningur innkaupa á trjám fyrir fyrsta hluta Borgarlínu
Áætlað er að fyrsta lota Borgarlínu verði í framkvæmd á árunum 2026-2031 og að um 1700 tré þurfi fyrir fyrstu lotu Borgarlínu sem er um 15 kílómetra löng og nær frá Ártúnshöfða, um Suðurlandsbraut, miðborgina, Nauthólsveg og að Hamraborg. Samkvæmt frétt Betri samgangna var gerð markaðskönnun til að undirbúa innkaup á trjám fyrir 1. lotu Borgarlínu og bárust svör frá fimm áhugasömum fyrirtækjum. Um er að ræða eftirfarandi fyrirtæki: Gróðrastöðin Mörk Gróðrastöðin í Kjarri Garð

Ritstjóri
Jan 13


Átakshópur innkaupa
Þann 1. september 2025 var greint frá því á vef stjórnarráðsins að stefnulýsing ríkisstjórnarinnar leggi áherslu á að ná stöðugleika í efnahagslífi, lækkun verðbólgu og vaxta, með styrkri stjórn á fjármálum ríkisins. Snar þáttur í að ná þeim markmiðum er að hagræða í rekstri ríkisins. Greint er frá því að sérstakur átakshópur innkaupa vinni að fjölmörgum aðgerðum sem miða sérstaklega að því að bæta yfirsýn og stuðla að gagnadrifinni ákvarðanatöku í innkaupastefnu ríkisins .

Ritstjóri
Jan 5


Samstarf um opinber innkaup ekki án galla
Akershus-fylki í Noregi hyggst draga sig út úr sameiginlegu innkaupasamstarfi þriggja fylkja, svonefndu ANSKA, eftir að niðurstaða mats leiddi í ljós takmarkanir í núverandi fyrirkomulagi. Þótt samstarfið hafi haft ákveðna kosti, meðal annars hvað varðar samræmingu og möguleg stærðarhagkvæmni, telur fylkisráðið að það skorti nauðsynlegt svigrúm til að nýta opinber innkaup sem raunverulegt stefnumótandi tæki. Í rökstuðningi fylkisráðsins kemur fram að sameiginlegt skipulag kre

Ritstjóri
Dec 29, 2025


Sex handteknir eftir húsleit á níu stöðum
Embætti héraðssaksóknara framkvæmdi í dag húsleitir og aðrar aðgerðir til þess að afla gagna og upplýsinga vegna ætlaðra brota tveggja fyrirtækja á markaði fyrir úrgangsþjónustu á samkeppnislögum. Rannsóknin beinist að ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna og grundvallast á kæru Samkeppniseftirlitsins. Samhliða rannsókn embættis héraðssaksóknara á ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna hefur Samkeppniseftirlitið til rannsóknar hugsanleg brot hlutaðeigandi fyrirtækja á ba

Ritstjóri
Dec 4, 2025


Aðskilnaðarkvíði ríkisforstjóra
Í aðsendum pistli á mbl.is eftir Ólaf Stephensen , framkvæmdastjóra Félag atvinnurekenda , er því haldið fram að opinberir aðilar, einkum Veðurstofa Íslands , hafi ekki uppfyllt lagaskyldur um fjárhagslegan aðskilnað samkeppnisrekstrar frá lögbundinni starfsemi. Í pistlinum er rakið að Veðurstofan hafi hvorki birt sérstaka gjaldskrá né haldið aðgreindum reikningum fyrir samkeppnisþjónustu sína, þrátt fyrir fyrri ábendingar og kröfur Samkeppniseftirlitið . Ólafur gagnrýnir að

Ritstjóri
Oct 5, 2025


Fyrirkomulag innkaupamála
Aðsend grein - Birt í ViðskiptaMogganum þann 8.3.2025 Consensa veitir viðskiptavinum sínum innkaupaþjónustu og innkauparáðgjöf. Félagið veitir innkauparáðgjöf og tekur að sér framkvæmd útboða óháð tegund innkaupa. Consensa hóf að bjóða opinberum aðilum upp á þjónustu sína árið 2019. Frá stofnun hefur félagið séð um yfir 100 útboð fyrir íslensk sveitarfélög. Árangur Consensa hefur vakið eftirtektarverða athygli bæði hérlendis og erlendis. Fyrir breytingu á lögum um opinber inn

Ritstjóri
Mar 8, 2025


Hagsýni í rekstri ríkisins
Þann 2. janúar 2025 óskaði ríkisstjórnin eftir tillögum, hugmyndum og sjónarmiðum um hvernig hægt væri að hagræða í rekstri ríkisins. Hægt er að senda inn tillögur í samráðsgátt til 23. janúar og var fólk hvatt til að hafa tillögurnar skýrar. Metþátttaka var í samráðinu en alls bárust 3.985 umsagnir. Aldrei áður höfðu fleiri umsagnir borist um eitt mál í samráðsgátt stjórnvalda. Fjögurra manna hagræðingarhópur sem skipaður var af forsætisráðherra var svo falið ítarlegri úrvin

Ritstjóri
Mar 5, 2025


Hagræðum með því að endurskoða umgjörð útboðsmála
Valur Þráinsson / aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins Ef stjórnvöld vilja hagræða með því að koma í veg fyrir samráð í útboðum er hluti af lausninni að auka fjárveitingar til eftirlitsins. Hönnun útboða og eftirlit með virkri samkeppni milli þátttakenda hefur veruleg áhrif á kjör hins opinbera í innkaupum sínum. Opinber innkaup nema háum fjárhæðum á hverju ári, og því er til mikils að vinna fyrir ríkissjóð og skattgreiðendur að sem best kjör bjóðist. Til að setja umfang

Ritstjóri
Mar 1, 2025


Svanurinn viðurkenndur í opinberum innkaupum í Bandaríkjunum
Svansvottaðar hreinlætis- og textílvörur eru nú meðal þeirra viðmiðaflokka sem viðurkenndir eru í opinberum innkaupum í Bandaríkjunum. Svansvottaðar vörur hafa hlotið enn sterkari stöðu á alþjóðavettvangi þar sem tveir viðmiðaflokkar Svansins hafa nú verið viðurkenndir af Umhverfisstofnun Bandaríkjanna (EPA). Listinn sem Svansvottaðar vörur eru nú á er uppfærður reglulega og er markmið hans að aðstoða opinbera aðila og fyrirtæki við að finna vörur sem uppfylla strangar umhver

Ritstjóri
Feb 20, 2025


Gengið eftir svörum um vildarpunkta
Félag atvinnurekenda (FA) hefur ítrekað erindi sitt til forseta Alþingis vegna notkunar alþingismanna og annarra ríkisstarfsmanna á vildarpunktum flugfélaga sem aflað er við ferðalög á kostnað skattgreiðenda. Í erindinu er forseti þingsins beðinn að svara fjórum spurningum um hvort slík notkun samræmist lögum, siðareglum og reglum um greiðslu ferðakostnaðar. FA sendi þingforseta fyrst bréf í október vegna upplýsinga um að þingmenn nýttu vildarpunkta í eigin þágu, einkum vegna

Ritstjóri
Feb 24, 2024
bottom of page