top of page


Má opinber kaupandi óska eftir ákveðnu vörumerki?
Má sveitarfélag ákveða að kaupa eingöngu Apple iPad vegna þess að slík tæki eru þegar í notkun? Nýleg niðurstaða þýsks dómstóls sýnir að fyrirliggjandi tækniumhverfi getur skipt máli, en það eitt nægir ekki til þess að loka samkeppni fyrir öðrum framleiðendum. Sama grundvallarregla gildir við opinber innkaup hér á landi. Þýska borgin Datteln bauð nýlega út kaup á 665 spjaldtölvum fyrir skóla borgarinnar. Útboðið gerði ráð fyrir Apple iPad-tækjum, en slík tæki voru þegar mikið

Ritstjóri
Sep 24


Kaupandi verður að bera ábyrgð á eigin matslíkani
Úrskurður kærunefndar útboðsmála í máli nr. 59/2025, sem kveðinn var upp 16. júní 2026, felur í sér mikilvæga áréttingu um ábyrgð kaupanda á þeirri matsaðferð sem hann ákveður að nota í útboði. Úrskurður kærunefndar útboðsmála í máli nr. 59/2025 Kjarni málsins var sá að Fjársýslan hafði sett upp matsaðferð þar sem lægsta verð í einstökum liðum gaf fullt hús stiga. Í A-hluta útboðsins var verðinu skipt niður í nokkra þjónustuþætti sem báru mismunandi vægi og stig voru reiknuð

Ritstjóri
Sep 2


Íþyngjandi málafjöldi en engin krafa um samtal
Birgir Örn Birgisson, lögfræðingur Consensa Nýlegur úrskurður kærunefndar útboðsmála í máli HHS verktaka ehf. gegn Dalvíkurbyggð vekur spurningar um hvaða kröfur eigi að gera til bjóðenda áður en formleg kæra er lögð fram. Málið varðaði útboð Dalvíkurbyggðar á jarðvinnu, lögnum og uppsteypu vatnstanks. HHS verktakar kærðu skilmála sem kváðu meðal annars á um að tilboði yrði vísað frá ef bjóðandi væri í vanskilum, skuld við sveitarfélagið eða ætti í málaferlum við það. Dalvíku

Ritstjóri
Jul 24


Kæranda gert að greiða málskostnað í ríkissjóð
Kærunefnd útboðsmála hefur, svo vitað sé, í fyrsta sinn úrskurðað kæranda til að greiða málskostnað í ríkissjóð. UHA Umhverfisþjónustu ehf. var gert að greiða 150 þúsund krónur vegna kæru félagsins yfir útboði Fjarðabyggðar á úrgangsþjónustu. Kæran laut að ákvörðun Fjarðabyggðar um að velja tilboð Kubbs ehf. í verkefnið „Úrgangsþjónusta í Fjarðabyggð 2025–2029“. UHA krafðist meðal annars að samningur sveitarfélagsins og Kubbs yrði lýstur óvirkur, að tilboð Kubbs yrði metið óg

Ritstjóri
Jul 24


Skortur á ESPD leiðir ekki sjálfkrafa til útilokunar
Birgir Örn Birgisson, lögfræðingur Consensa Dómstóll Evrópusambandsins komst að þeirri niðurstöðu í máli C-812/24, LIPOR og PreZero Portugal , sem birt var 22. janúar 2026, að skortur á ESPD-hæfisyfirlýsingu leiði ekki sjálfkrafa til útilokunar. Dómurinn skýrir jafnframt að móðurfélag sem hyggst nýta 100% dótturfélag sitt við framkvæmd samnings telst reiða sig á getu annars aðila í skilningi 63. gr. tilskipunar 2014/24. Málsatvik í stuttu máli LIPOR bauð út þjónustusamning um

Ritstjóri
Feb 15


Úrskurður - mál nr. 27/2025
Kæran málsins laut að útboði Framkvæmdasýslunar - Ríkiseigna, fyrir hönd Vesturbyggðar vegna ofanflóðavarna í Bíldudal, þar sem Borgarverk krafðist þess að felldar yrðu úr gildi ákvarðanir varnaraðila um að hafna tilboði kæranda og velja tilboð Suðurverks hf. í útboðinu. Ágreiningur aðila laut einkum að því hvort varnaraðilum hafi verið heimilt að hafna tilboði kæranda sem óaðgengilegu á þeim grundvelli að kærandi hafi ekki uppfyllt kröfur um fjárhagslegt hæfi, nánar tiltekið

Ritstjóri
Jan 6


Ákvörðun - mál nr. 35/2025
Kæran málsins laut að útboði Kópavogsbær um endurnýjun gervigrass í Fífunni, þar sem Metatron ehf. kærði val á tilboði Exton ehf. Ágreiningur reis um hvort kæran hefði haft í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar samkvæmt lögum nr. 120/2016. Kærunefndin lagði til grundvallar að varnaraðili hefði tilkynnt endanlega töku tilboðs 15. júlí 2025 , sem samkvæmt 3. mgr. 86. gr. laganna hafði þau réttaráhrif að bindandi samningur komst á milli kaupanda og Exton ehf. Nefndin

Ritstjóri
Jan 5


Ákvörðun - mál nr. 20/2025
Kæran málsins laut að útboði Fjársýslu ríkisins fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðuneytisins auðkennt auðkennt „Multidisciplinary teams for enhancement of digital services“. Kæra málsins barst á biðtíma samningsgerðar og hafði í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar. Ágreiningur málsins varðaði m.a. það hvort varnaraðili hafi brotið gegn lögum nr. 120/2016 og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 með því að byggja endanlega stigagjöf bjóðenda varðandi þekkingu og reyns

Ritstjóri
Aug 25, 2025


Sorpa fær ekki að áfrýja
Hæstiréttur hefur hafnað Sorpu um áfrýjunarleyfi fyrir réttinum í bótamáli Íslenskra aðalverktaka gegn Sorpu. Í Landsrétti var Sorpa dæmd til að greiða Íslenskum aðalverktökum 88 milljónir í bætur í tengslum við útboð á gas- og jarðgerðarstöð á Álfsnesi (GAJA). Hæstiréttur hafnaði beiðni Sorpu um að taka málið fyrir á þeim grundvelli að ekki væri talið að úrlausn málsins fyrir Hæstarétti hefði verulegt almennt gildi eða að málsmeðferð Landsrétt

Ritstjóri
Jan 12, 2024
bottom of page