Kaupandi verður að bera ábyrgð á eigin matslíkani


Úrskurður kærunefndar útboðsmála í máli nr. 59/2025, sem kveðinn var upp 16. júní 2026, felur í sér mikilvæga áréttingu um ábyrgð kaupanda á þeirri matsaðferð sem hann ákveður að nota í útboði.
Úrskurður kærunefndar útboðsmála í máli nr. 59/2025
Kjarni málsins var sá að Fjársýslan hafði sett upp matsaðferð þar sem lægsta verð í einstökum liðum gaf fullt hús stiga. Í A-hluta útboðsins var verðinu skipt niður í nokkra þjónustuþætti sem báru mismunandi vægi og stig voru reiknuð samkvæmt formúlunni „lægsta verð / boðið verð × vægi“.
Einn bjóðandi, Íslenska gámafélagið, bauð núll krónur í tiltekna þrifaliði sem saman gátu gefið fimm stig. Við það kom upp stærðfræðilegt vandamál þar sem reikniformúlan varð 0/0 við útreikning á stigum félagsins.
Fjársýslan taldi að þessi staða gerði matsaðferðina óframkvæmanlega og að ekki væri hægt að ljúka útboðinu með lögmætum hætti án þess að breyta útreikningsaðferðinni eftir opnun tilboða. Slík breyting væri að mati Fjársýslunnar veruleg og bryti gegn jafnræði, fyrirsjáanleika og gagnsæi. Á þeim grundvelli var ákveðið að fella útboðið niður.
Kærunefnd útboðsmála féllst ekki á þá niðurstöðu. Nefndin tók vissulega undir að bókstafleg beiting formúlunnar skilaði ekki skilgreindri stærðfræðilegri niðurstöðu. Hún taldi það þó ekki ráða úrslitum. Í útboðsgögnunum hafði verið tekið fram að lægsta verð ætti að fá fullt hús stiga. Hefði Íslenska gámafélagið boðið eina krónu í stað núll króna hefði félagið fengið fullt hús stiga en keppinauturinn stig sem væru afar nálægt núlli. Reikningsvandinn breytti því ekki raunverulegum samanburði tilboðanna.
Kærunefnd lagði jafnframt áherslu á að Fjársýslan bæri ábyrgð á framsetningu útboðsgagnanna. Heppilegra hefði verið að haga valforsendunum þannig að fjárhagslega óhagkvæmt væri að bjóða núll krónur í einstaka liði eða að nota heildartilboðsverð með öðrum hætti. Aðstæðurnar sem sköpuðust mætti því í grunninn rekja til óheppilegrar framsetningar valforsendanna sjálfra. Ákvörðun Fjársýslunnar um niðurfellingu útboðsins var því felld úr gildi.
Úrskurður KOFA í máli nr. 2026/1162
Nýleg niðurstaða norsku kærunefndarinnar KOFA í máli nr. 2026/1162 styður sömu grundvallarhugsun með skýrum hætti. Þar var um að ræða útboð á rammasamningum um verkþjónustu þar sem verð vó 70% og umhverfisþættir 30%.
Bjóðendur áttu meðal annars að gefa upp fast prósentuálag vegna rafknúinna vinnuvéla. Einn bjóðandi bauð ekki rafknúnar vinnuvélar og setti því „0%“ í viðkomandi verðreit. Útboðsgögnin gerðu hins vegar ráð fyrir að ef verð vantaði í reit skyldi kaupandi nota verð sem næmi 150% af hæsta verði samkeppnisaðila.
Kaupandinn taldi að 0% væri ekki raunverulegt verð þar sem viðkomandi vélar væru ekki boðnar. Núllið var því meðhöndlað eins og verð vantaði og matsverð tilboðsins hækkað úr um 19,9 milljónum norskra króna í um 24,8 milljónir. KOFA taldi þessa aðferð óheimila. Bjóðandinn hafði fyllt út verðreitinn og þar stóð 0%. Það var því ekki um vantað verð að ræða. Ekkert í útboðsgögnunum bannaði jafnframt að álagið væri sett í núll. Kaupandinn gat því ekki eftir opnun tilboða ákveðið að 0% skyldi meðhöndlað eins og auðan reit vegna þess að áhrif þess á matsniðurstöðuna reyndust óheppileg.
KOFA viðurkenndi að niðurstaðan gæti skapað ákveðið misræmi í matslíkaninu. Bjóðandi sem bauð ekki rafknúnar vinnuvélar gat þannig fengið betri verðmatslega stöðu en sá sem bauð þær. Það breytti hins vegar ekki því að vandinn stafaði af því hvernig kaupandinn hafði sjálfur ákvarðað matsaðferðina.
Rétt niðurstaða í báðum málum
Málin tvö eru ekki að öllu leyti sambærileg. Í íslenska málinu ákvað Fjársýslan að fella útboðið niður en í norska málinu reyndi kaupandinn að leiðrétta matsniðurstöðuna með því að bæta verði við tilboðið. Undirliggjandi álitaefnið er þó hið sama.
Í báðum tilvikum hafði bjóðandi hagað verðlagningu sinni með hætti sem útboðsgögnin bönnuðu ekki. Í báðum tilvikum leiddi sú verðlagning í ljós veikleika í matsaðferð sem kaupandinn hafði sjálfur ákveðið. Og í báðum tilvikum reyndi kaupandinn eftir opnun tilboða að komast hjá þeim áhrifum sem matsaðferðin hafði í för með sér.
Niðurstöður kærunefndanna voru réttar. Bjóðendur verða að geta treyst því að tilboð sem eru í samræmi við útboðsgögn verði metin samkvæmt þeim leikreglum sem þar hafa verið birtar. Ef matsaðferð reynist vera gölluð eða leiðir til niðurstöðu sem kaupandi hafði ekki séð fyrir er ekki hægt að velta ábyrgðinni yfir á bjóðanda sem hefur einfaldlega hagað tilboði sínu innan þeirra marka sem útboðsgögnin setja.
Það er kaupandans að hanna matsaðferðina og prófa hvernig hún bregst við mismunandi verðlagningu, þar á meðal jaðartilvikum eins og núllverði. Þegar tilboðin hafa verið opnuð er of seint að uppgötva að leikreglurnar hefðu átt að vera öðruvísi.
Úrskurður kærunefndar útboðsmála í máli 59/2026
https://www.stjornarradid.is/gogn/urskurdir-og-alit-/stakur-urskurdur/2026-07-20-Mal-nr.-59-2025.-Urskurdur-kaerunefndar-utbodsmala Úrskurður KOFA í máli 2026/1162 https://www.klagenemndssekretariatet.no/sak/2026-1162


