top of page

Kynning - EIPA

Writer: Ritstjóri
Ritstjóri
Feb 13
3 min read

Á síðunni birtum við kynningar á aðilum sem tengjast framkvæmd opinberra innkaupa með einum eða öðrum hætti s.s. kynningar á aðilum sem falla undir lög um opinber innkaup og starfsmönnum þeirra. Markmið kynninganna er að auka þekkingu og skilning á starfsemi og hlutverki þessara aðila.

Hvert er heiti og lögform aðila? Hver er stofndagur hans, hlutverk og tilgangur ?

Evrópska stofnunin um opinbera stjórnsýslu (EIPA – European Institute of Public Administration) er sjálfseignarstofnun samkvæmt hollenskum lögum. Hún var stofnuð árið 1981 í Maastricht í Hollandi.


EIPA veitir fræðslu og þjálfun, ráðgjöf og samanburðarrannsóknir með það að markmiði að efla hæfni opinberra starfsmanna til að takast á við málefni tengd Evrópusambandinu. Höfuðstöðvar EIPA eru í Maastricht og stofnunin rekur einnig skrifstofu í Lúxemborg.


Á hverju ári taka yfir 10.000 embættismenn frá stofnunum, aðilum og umboðsskrifstofum ESB, sem og frá stjórnvöldum aðildarríkjanna á öllum stjórnsýslustigum, þátt í starfsemi stofnunarinnar. Þetta samsvarar yfir 15.000 náms- og viðburðardögum á ári. Stofnunin nýtur stuðnings aðildarríkja ESB sem og Evrópusambandsins í gegnum Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins.Nánari upplýsingar um EIPA má finna á: www.eipa.eu.

Með hvaða hætti hefur EIPA lagt sitt af mörkum á sviði opinberra innkaupa og hvaða námskeið, fræðslu, menntun eða aðra starfsemi á því sviði hefur EIPA boðið upp á á undanförnum árum? EIPA hefur frá árinu 2022 boðið upp á tvær vottanir á sviði opinberra innkaupa:

  1. Evrópska vottun EIPA fyrir sérfræðinga í opinberum innkaupum (European Certification for Public Procurement Professionals), þar sem þátttakendur eru þjálfaðir í þremur mismunandi námsþáttum sem fjalla um lykilhæfni sem þarf til að vera traustur og hæfur fagmaður á sviði opinberra innkaupa.

  2. ProcurCompEU-vottun EIPA fyrir opinberar stofnanir, þar sem EIPA veitir aðstoð og leiðsögn við sjálfsmat og gerð námskrár fyrir starfsfólk þeirra.

Yfirlit yfir námskeið EIPA á sviði opinberra innkaupa:

  • Starfsnámskeið: Reglur, stefna og framkvæmd evrópskra opinberra innkaupa

  • Opinber innkaup á heilbrigðissviði

  • Ný fjármálareglugerð ESB: Áhrif og áskoranir í opinberum innkaupum

  • Kaup á gervigreind og notkun gervigreindar í innkaupaferlum

  • Stefnumótandi opinber innkaup: Nýsköpun, umhverfismarkmið og samfélagsleg áhrif

  • Evrópsk varnarmála- og öryggisinnkaup – nýleg þróun

  • Nýleg þróun í evrópskum opinberum innkaupum og dómaframkvæmd

  • Meistaranámskeið í samkeppnisviðræðum og samningskaupaferlum

  • Samningsstjórnun og framkvæmd samninga í opinberum innkaupum

Hversu margir þátttakendur frá Íslandi hafa tekið þátt í námskeiðum eða annarri starfsemi EIPA á sviði opinberra innkaupa á undanförnum árum ? Á tímabilinu 2023–2025 hafa yfir 40 þátttakendur komið frá Íslandi. Á árinu 2025 einu og sér voru 16 þáttakendur frá Íslandi. Meirihlutinn af þessum þátttakendum eru í vottunarferlinu. Hér má finna umsögn frá einum þátttakanda sem kemur frá Íslandi.

Hefur EIPA sett sér stefnu eða markmið í tengslum við opinber innkaup?

EIPA styður viðleitni Evrópusambandsins til að fagvæða opinbera geirann á sviði opinberra innkaupa. Í samræmi við námskrár og leiðbeiningar Evrópusambandsins vinnur EIPA að miðlun þekkingar og uppbyggingu hæfni með sérhæfðri fræðslu og rannsóknarstarfsemi.


Starfsemin beinist að því að styrkja samræmi við reglur ESB um opinber innkaup og koma í veg fyrir algeng mistök í innkaupaferlum, þar á meðal brot gegn meginreglum um gagnsæi, jafnræði og bann við mismunun; rangt val á innkaupaferli; verulegar breytingar á samningum; og ófullnægjandi áhættustýringu.


EIPA styður einnig stofnanir og umboðsskrifstofur Evrópusambandsins sem og aðildarríki ESB við að efla stefnumótandi opinber innkaup. Sérstök áhersla er lögð á samþættingu og mat á umhverfis-, félags- og nýsköpunarsjónarmiðum í innkaupaferlum, með það að markmiði að stuðla að sjálfbærari og árangursríkari ráðstöfun opinbers fjár.


Ef EIPA ætti að skrifa eitt orð er tengist opinberum innkaupum, hvaða orð væri það? Reglufylgni

bottom of page