Kynning - Landsvirkjun
- Ritstjóri

- Jan 20
- 1 min read
Updated: Feb 13

Á síðunni birtum við kynningar á aðilum sem tengjast framkvæmd opinberra innkaupa með einum eða öðrum hætti s.s. kynningar á aðilum sem falla undir lög um opinber innkaup og starfsmönnum þeirra. Markmið kynninganna er að auka þekkingu og skilning á starfsemi og hlutverki þessara aðila.
Hvert er heiti og lögform aðila? Hver er stofndagur hans, hlutverk og tilgangur ?
Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu þjóðarinnar. Fyrirtækið var stofnað 1. Júlí 1965 og er í dag eitt verðmætasta fyrirtæki landsins. Landsvirkjun vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum, vatni, varma og vindi. Landsvirkjun vinnur stærstan hluta allrar raforku á Íslandi eða um 70%. Hjá Landsvirkjun starfa um 340 manns víðsvegar um landið. Hlutverk Landsvirkjunar er að hámarka verðmæti þeirra endurnýjanlegu orkulinda sem fyrirtækinu er trúað fyrir, með sjálfbærni og hagkvæmni að leiðarljósi.
Hvernig tengist Landsvirkjun framkvæmd opinberra innkaupa og hvaða verkefnum hefur aðili sinnt er varða framkvæmd opinberra innkaupa síðustu ár ? Landsvirkjun er opinber aðili og innkaup þess falla undir reglugerð nr. 340/2017 um innkaup aðila sem annast vatnsveitu, orkuveitu, flutninga og póstþjónustu. Innkaupadeild hefur aðkomu að öllum innkaupum Landsvirkjunar
Hefur Landsvirkjun sett sér einhverja stefnu eða markmið í innkaupamálum ? Já það hefur Landsvirkjun svo sannarlega gert. Landsvirkjun hefur sett sér innkaupastefnu, hana er hægt að kynna sér með því að smella á þennan hlekk.
Hversu margir starfsmenn sinna innkaupamálum hjá Landsvirkjun?
Um er að ræða 6 stöðugildi í fullu starfi ásamt 3 nemum í hlutastarfi.
Ef Landsvirkjun ætti að skrifa eitt orð er tengist opinberum innkaupum, hvaða orð væri það? Traust.


