top of page

Opnað fyrir skráningu á námskeið um opinber innkaup

Writer: Ritstjóri
Ritstjóri
Jun 5
1 min read

Opnað hefur verið fyrir skráningu á námskeiðið Lög um opinber innkaup hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Um er að ræða hagnýtt grunnnámskeið fyrir þau sem vinna við opinber innkaup, útboðsgerð eða tilboðsgerð í opinberum útboðum.


Á námskeiðinu verður farið yfir helstu reglur laga nr. 120/2016 um opinber innkaup, framkvæmd útboða, hæfiskröfur, tæknilýsingar, valforsendur og úrlausnir kærunefndar útboðsmála og dómstóla. Námskeiðið fer fram í staðnámi dagana 29. september, 1. október og 6. október 2026, samtals 9 klukkustundir. Kennarar eru Hildur Georgsdóttir og Dagmar Sigurðardóttir.


Snemmskráningarverð gildir til 20. september 2026. Hlekkur á skráningarsíðu

bottom of page