top of page

Takmörk miðstýringar

Writer: Ritstjóri
Ritstjóri
Feb 6
1 min read

Erlendur Ingi Jónsson, doktor í hagfræði


Einn af vanmetnustu hugsuðum tuttugustu aldarinnar er að mati undirritaðs hagfræðingurinn Thomas Sowell. Ein af lykilhugmyndum hans er að þekking í samfélagi sé dreifð en ekki miðlæg. Hún er bundin einstaklingum, aðstæðum, tíma og stað, og engin miðlæg stofnun eða hópur sérfræðinga hefur aðgang að þessari staðbundnu þekkingu í heild sinni.


Markaðir, stofnanir og hefðir virka sem upplýsingakerfi sem safna saman þessari dreifðu þekkingu og umbreyta henni í ákvarðanir. Miðstýrð ákvarðanataka skortir hins vegar bæði upplýsingarnar og hvata til að laga sig að raunverulegum aðstæðum. Afleiðingin er oft röng úthlutun, sóun og ófyrirséðar neikvæðar afleiðingar.


Sowell bendir á að vandinn sé ekki siðferðilegur heldur þekkingarfræðilegur. Spurningin er ekki hvort stjórnmálamenn ætli samfélaginu vel, heldur hvort þeir hafi raunverulega þær upplýsingar sem þarf til að taka réttar ákvarðanir.


Samkvæmt Sowell felst staðbundin þekking meðal annars í því að kaupmaðurinn veit hvað selst í hans verslun, á hvaða verði og hvenær. Bóndinn veit hvenær á að sá eða slá, út frá veðri og landi. Kennarinn veit hvað virkar fyrir sína nemendur, ekki einhvern huglægan „meðalnemanda“. Fyrirtæki skynja hvar er skortur og hvar offramboð löngu áður en slík gögn berast yfirvöldum.


Þessi þekking er oft ómeðvituð og byggð á reynslu, síbreytileg frá degi til dags og ómöguleg að safna saman með miðlægum hætti án þess að gæði hennar glatist.

bottom of page