Aðeins rúmur helmingur boðaðra opinberra útboða raungerðist


Aðeins 56% boðaðra útboða níu opinberra verkkaupa raungerðust á árunum 2022–2025. Á tímabilinu voru boðuð útboð að fjárhæð samtals 737,3 milljarðar króna, en raunveruleg útboð sömu aðila námu 416,2 milljörðum króna.
Þetta kemur fram í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins á útboðum og fjárfestingum þeirra opinberu verkkaupa sem tekið hafa þátt í Útboðsþingi SI. Samanlagður munur á boðuðum og raunverulegum útboðsfjárhæðum nam því 321,1 milljarði króna.
Frávikið verður ekki rakið til eins einstaks árs. Hlutfall raunútboða af boðuðum útboðum var á bilinu 51–66% öll árin 2022–2025. Árið 2025 voru til dæmis boðuð útboð að fjárhæð 253,8 milljarðar króna, en raunútboð námu 136 milljörðum króna, eða um 54% af áformum ársins.
Greiningin tekur til níu verkkaupa en ekki allra opinberra framkvæmda. Hún sýnir jafnframt frávik frá boðuðum árlegum fjárhæðum en ekki hversu mörg einstök verkefni féllu niður. Verkefni geta færst milli ára, verið boðuð oftar en einu sinni eða breyst að efni og umfangi.
Fjárfestingar fylgja áætlunum betur
Fjárfestingar í verklegum framkvæmdum fylgdu áætlunum mun betur en útboðin. Boðaðar fjárfestingar á árunum 2022–2025 námu samtals 597,9 milljörðum króna, en raunfjárfesting varð 533,9 milljarðar króna. Raunfjárfesting nam því 89% af áformum, samanborið við 56% í tilviki útboða.
Þessi munur kann meðal annars að skýrast af því að fjárfestingar hvers árs byggjast að verulegu leyti á verkefnum sem þegar hafa verið boðin út og framkvæmdir hafnar við. Ný útboð ráðast hins vegar meðal annars af undirbúningi, leyfisveitingum og ákvarðanatöku.
Árið 2026 er gert ráð fyrir 214,7 milljarða króna fjárfestingu hjá þeim verkkaupum sem greiningin nær til. Það er um 31% meira en raunfjárfesting ársins 2025. Á sama tíma lækka boðuð útboð um 16% milli ára og nema 213 milljörðum króna. Rauntölur fyrir árið 2026 liggja ekki fyrir.
Mesta frávikið hjá félögum í C-hluta ríkissjóðs
Talsverður munur er á því hversu vel útboðsáætlanir einstakra flokka verkkaupa gengu eftir. Hjá sveitarfélögum og félögum þeirra námu raunútboð 94% af boðuðum fjárhæðum. Hlutfallið var 62% hjá aðilum í A-hluta ríkissjóðs en aðeins 37% hjá félögum í C-hluta ríkissjóðs.
Til A-hluta teljast í greiningunni Vegagerðin, Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir og Nýr Landspítali. Í C-hluta eru Landsvirkjun, Landsnet og Isavia. Reykjavíkurborg, Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Veitur mynda þriðja hópinn.
Landsvirkjun vegur þungt í niðurstöðu C-hlutans. Raunútboð fyrirtækisins námu aðeins 27% af boðuðum útboðsfjárhæðum, en samanlagt hlutfall Landsnets og Isavia var um 73%. Þá standa Landsvirkjun og Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir saman að baki 76% af samanlögðum nettómun boðaðra útboða og raunútboða í gagnasafninu.
Í greiningunni er bent á að stór verkefni séu almennt háð meiri óvissu en smærri verkefni. Sveitarfélög bjóði gjarnan út mörg og smærri verk sem þegar séu komin inn í samþykkta fjárhagsáætlun, en félög í C-hluta standi fremur fyrir fáum og umfangsmiklum verkefnum þar sem leyfisferli, kærufrestir og undirbúningur geti haft veruleg áhrif á tímasetningar.
Hvammsvirkjun er nefnd sem dæmi um þetta. Landsvirkjun aflýsti útboði vegna undirbúningsframkvæmda árið 2023 eftir að virkjunarleyfi hafði verið fellt úr gildi. Öðrum fyrirhuguðum útboðum vegna framkvæmdarinnar var jafnframt frestað um óákveðinn tíma.
Verktakar telja óvissuna hækka tilboð
Greiningin vísar einnig til könnunar Outcome fyrir SI meðal stjórnenda verktakafyrirtækja. Þar töldu 91% svarenda að ófyrirsjáanleiki í opinberum framkvæmdum leiddi til aukins kostnaðar og hærri tilboða.
Stjórnendurnir töldu að fyrirtæki þeirra gætu að jafnaði boðið nær 11% lægra ef meiri fyrirsjáanleiki væri fyrir hendi. Sé það hlutfall yfirfært á áætlaða 221 milljarðs króna heildarfjárfestingu hins opinbera í innviðum á árinu samsvarar það rúmlega 24 milljörðum króna.
Tekið er fram í greiningunni að hér sé um mat svarenda að ræða en ekki mælda kostnaðarhækkun eða tryggðan sparnað. Niðurstöðurnar gefi engu að síður tilefni til að verkkaupar kynni raunhæfar tímasetningar, upplýsi tímanlega um breytingar og tryggi fyrirtækjum nægan undirbúningstíma.


