top of page


Samtök opinberra innkaupaaðila stofnuð
Samtök opinberra innkaupaaðila voru stofnuð á fundi í Reykjavík 1. október síðastliðinn. Markmið samtakanna er meðal annars að efla tengslamyndun meðal opinberra aðila sem sinna innkaupum, auka faglega þekkingu og efla ímynd opinberra innkaupa. Sveinbjörn Ingi Grímsson annaðist skipulagningu og utanumhald stofnfundarins. Á fundinum var tíu manna stjórn samtakanna sjálfkjörin. Stjórnina skipa: Agla Margrét, starfsmaður FSRE Alda Kristín, starfsmaður Vegagerðarinnar Kjartan, st

Ritstjóri
Oct 3


Má opinber kaupandi óska eftir ákveðnu vörumerki?
Má sveitarfélag ákveða að kaupa eingöngu Apple iPad vegna þess að slík tæki eru þegar í notkun? Nýleg niðurstaða þýsks dómstóls sýnir að fyrirliggjandi tækniumhverfi getur skipt máli, en það eitt nægir ekki til þess að loka samkeppni fyrir öðrum framleiðendum. Sama grundvallarregla gildir við opinber innkaup hér á landi. Þýska borgin Datteln bauð nýlega út kaup á 665 spjaldtölvum fyrir skóla borgarinnar. Útboðið gerði ráð fyrir Apple iPad-tækjum, en slík tæki voru þegar mikið

Ritstjóri
Sep 24


Aðeins rúmur helmingur boðaðra opinberra útboða raungerðist
Aðeins 56% boðaðra útboða níu opinberra verkkaupa raungerðust á árunum 2022–2025. Á tímabilinu voru boðuð útboð að fjárhæð samtals 737,3 milljarðar króna, en raunveruleg útboð sömu aðila námu 416,2 milljörðum króna. Þetta kemur fram í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins á útboðum og fjárfestingum þeirra opinberu verkkaupa sem tekið hafa þátt í Útboðsþingi SI. Samanlagður munur á boðuðum og raunverulegum útboðsfjárhæðum nam því 321,1 milljarði króna. Frávikið verður ekki rakið

Ritstjóri
Sep 19


ESA telur beina samningsgerð Noregs án útboðs brjóta gegn EES-reglum
ESA telur beina samningsgerð ólögmæta Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, telur að norsk stjórnvöld hafi brotið gegn EES-reglum með því að ákveða að gera samning um farþegalestarþjónustu í Suður-Noregi beint við ríkisrekna járnbrautarfyrirtækið Vy án samkeppnisútboðs. ESA hefur nú sent Noregi rökstutt álit vegna málsins. Um er að ræða annað stig formlegrar samningsbrotameðferðar gagnvart EFTA-ríki innan EES. Noregur hefur tvo mánuði til að grípa til nauðsynlegra ráðstafana áður en ES

Ritstjóri
Sep 16


Sveitarfélög sögð hafa ofgreitt yfir 100 milljónir vegna sorphirðu
Ofrukkun vegna sorphirðu yfir 100 milljónir Íslenska gámafélagið ofrukkaði Garðabæ og Mosfellsbæ um samtals rúmlega 100 milljónir króna vegna sorphirðu samkvæmt umfjöllun Heimildarinnar. Fram kemur í fréttinni að ráðgjafarfyrirtækið Resource International hafi verið fengið til að fara yfir greiðslur sveitarfélaganna til Íslenska gámafélagsins á árunum 2013 til 2021. Samkvæmt þeirri yfirferð námu ofgreiðslur Garðabæjar um 74 milljónum króna á núvirði á árunum 2017 til 2020 og

Ritstjóri
Sep 16


Nýtt verklag um auglýsingakaup
Samkvæmt tilkynningu Stjórnarráðsins hefur það ákveðið að beina auglýsingakaupum sínum til fjölmiðla. Þessi ákvörðun er í samræmi við aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum fjölmiðla, sem kynnt var 19. desember síðastliðinn. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra kynnti ríkisstjórninni í nóvember að ráðuneyti hans hefði ákveðið að kaupa einungis auglýsingar af fjölmiðlum. Í kjölfarið var verklagið kynnt ráðuneytisstjórum og upplýsingafulltrúum allra ráðuneyta sem tóku jákvæ

Ritstjóri
Sep 15


Borgarverk fær nær milljarða króna jarðvinnuverkefni
Borgarverk fær nær milljarðs króna jarðvinnuverkefni við nýtt fangelsi Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir hefur tekið tilboði Borgarverks ehf. í jarðvinnuframkvæmdir vegna nýs öryggisfangelsis að Stóra-Hrauni í sveitarfélaginu Árborg. Tilboð Borgarverks nam 993.093.626 krónum með virðisaukaskatti og var lægsta gilda tilboðið sem barst í útboðinu. Tilboðið var metið hagstæðast samkvæmt valforsendum útboðsgagna og hefur verið tekið. FSRE stóð fyrir útboðinu fyrir hönd dómsmálaráðun

Ritstjóri
Sep 15


Umfangsmiklar breytingar á innkaupareglum ESB
Drög að nýrri heildstæðri reglugerð Evrópusambandsins um opinber innkaup hafa lekið og verið birt í evrópskum fjölmiðlum. Drögin eru óformlegt vinnuskjal framkvæmdastjórnar ESB og geta því tekið breytingum áður en endanleg tillaga verður lögð fram. Nú er áformað að framkvæmdastjórnin kynni tillöguna formlega 9. september 2026. Verði tillagan að veruleika er um að ræða umfangsmestu breytingar á innkaupareglum ESB frá árinu 2014. Ein reglugerð í stað þriggja tilskipana Samkvæmt

Ritstjóri
Jul 24


Fjársýslan tekur þátt í evrópsku samstarfi
Samkvæmt frétt á heimasíðu Fjársýslunnar þá hefur Fjársýslan lokið ráðgjafarverkefni í samstarfi við Innovation Procurement Hubs, evrópskt verkefni á vegum Public Buyers Community sem styður opinbera aðila á Evrópska efnahagssvæðinu við að efla þekkingu á aðferðum fyrir innkaup á nýsköpun. Verkefnið beindist að því að styrkja verklag Fjársýslunnar við undirbúning nýsköpunarinnkaupa, einkum á fyrstu stigum áður en formlegt innkaupaferli hefst. Áhersla var lögð á þarfagreiningu

Ritstjóri
Jun 25


Opinber innkaup sem afl í grænum umskiptunum
Í Noregi hefur ríkisfyrirtækið Nye Veier AS, sem annast uppbyggingu og rekstur stórra vegaframkvæmda, og norsku umhverfissamtökin ZERO hvatt til þess að opinber innkaup verði notuð með mun markvissari hætti til að draga úr losun í byggingar- og mannvirkjageiranum. Boðskapurinn er skýr: loftslagsmál eru ekki lengur aukaatriði í opinberum útboðum heldur eru þau í auknum mæli að verða ein af grundvallarforsendum innkaupa. Útboð framtíðarinnar munu því ekki einungis vinnast á ver

Ritstjóri
Jun 4


Leiðbeiningar fyrir bjóðendur
Birgir Örn Birgisson, sérfræðingur Consensa Consensa hefur unnið sérstakar leiðbeiningar fyrir bjóðendur sem munu hér eftir fylgja sem viðauki með útboðsgögnum í útboðum fyrirtækisins. Tilgangur leiðbeininganna er að veita bjóðendum skýrar og hagnýtar upplýsingar um tilboðsgerð og þátttöku í útboðum, með það að markmiði að stuðla að skilvirkara útboðsferli, betri tilboðum og hagkvæmari samningum. Í leiðbeiningunum er meðal annars fjallað um mikilvægi þess að kynna sér útboðsg

Ritstjóri
Apr 17


Innkaupaferli Þjóðarhallar á lokametrunum
Gert er ráð fyrir að niðurstöður í samkeppnisútboði vegna byggingar Þjóðarhallar liggi fyrir á allra næstu dögum. Vonast er til að í kjölfarið verði hægt að hefja framkvæmdir – um fjórum árum eftir að viljayfirlýsing um verkefnið var undirrituð. Viljayfirlýsing um byggingu Þjóðarhallar var undirrituð vorið 2022. Á blaðamannafundi í janúar 2023 var tilkynnt að stefnt væri að því að höllin yrði reist fyrir lok árs 2025. Þá var áætlaður kostnaður um 15 milljarðar króna, en enn l

Ritstjóri
Mar 19


Útboðsgögn og Svansvottun
Svansvottaðar byggingar njóta sífellt meiri vinsælda á Íslandi og hefur uppbygging þeirra aukist verulega á undanförnum árum. Þann 5. mars stóðu Svanurinn og Iðan fræðslusetur fyrir málþingi um Svansvottaðar byggingar þar sem fjallað var um reynslu, áskoranir og lausnir í slíkum verkefnum. Á málþinginu komu saman fulltrúar frá byggingargeiranum, umsækjendur, leyfishafar, ráðgjafar, verktakar og verkkaupar, til að miðla reynslu og ræða hvernig best sé að vinna að verkefnum sem

Ritstjóri
Mar 11


Eina tilboðið frá Icelandair langt yfir áætlun
Eitt tilboð barst í útboði Vegagerðarinnar fyrir áætlunarflug milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Tilboðið kom frá Icelandair og er verulega yfir kostnaðaráætlun verkkaupa. Samkvæmt opnunarskýrslu , sem birt var á heimasíðu Vegagerðarinnar, var áætlaður verktakakostnaður 1,341 milljarðar króna en tilboð Icelandair nemur 3,527 milljörðum króna, sem er um 2,2 milljörðum yfir áætlun. Útboðið var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu í janúar og frestur til að skila inn tilboðum rann ú

Ritstjóri
Feb 26


Skiptar skoðanir um skilmála útboðs
Nýlega auglýsti Consensa, fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar, eftir tilboðum um rekstur og uppbyggingu heilsuræktaraðstöðu við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Um er að ræða sérleyfi sem tekur til uppbyggingar og reksturs heilsuræktaraðstöðu sem styður við markmið sveitarfélagsins um bætt heilbrigði, vellíðan og aðgengi íbúa að fjölbreyttri hreyfingu og íþróttastarfsemi. Útboðið er auglýst í framhaldi þess að sambærilegt útboð var auglýst árið 2025 og kært til kærunefndar útboðsmála.

Ritstjóri
Feb 25


Leiðbeiningar OECD um baráttu gegn ólögmætu samráði í opinberum innkaupum
Þann 16. febrúar 2026 gaf OECD út Leiðbeiningar um baráttu gegn ólögmætu samráði í opinberum innkaupum út á íslensku. Leiðbeiningarnar fela í sér safn leiðbeininga og góðra starfshátta sem ætlað er að styðja opinbera starfsmenn við að fyrirbyggja, greina og tilkynna ólögmætt samráð í opinberum innkaupaferlum. Leiðbeiningarnar styðja við innleiðingu á tilmælum OECD um baráttu gegn samráði í opinberum útboðum [OECD-LEGAL-0396]. Þær innihalda almennar meginreglur sem hægt er að

Ritstjóri
Feb 18


Fjórir aðilar buðu í byggingu hjúkrunarheimilis á Húsavík
Tilboð voru opnuð í byggingu nýs hjúkrunarheimilis á Húsavík á mánudag. Tilboð bárust frá fjórum aðilum: Eik fasteignafélagi, Pekron ehf., Reitir atvinnuhúsnæði og Þingvangi ehf. Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir óskaði á síðasta ári fyrir hönd félags- og húsnæðismálaráðuneytisins eftir leigutilboðum fyrir húsnæði undir hjúkrunarheimili á Húsavík. Verkefnið snýr að því byggja og fullgera hjúkrunarheimili við Auðbrekku 2 sem ríkið mun síðan leigja með langtímaleigusamningi. Nýja

Ritstjóri
Feb 13


Góð mæting á fund SI um útboðsmál í mannvirkjaiðnaði
Dagmar Sigurðardóttir, lögmaður og eigandi Lagastoðar og sérfræðingur í opinberum innkaupum . Góð mæting var á fræðslufund SI fyrir félagsmenn í mannvirkjaiðnaði um útboðsmál sem fór fram í gær. Fundurinn fór fram bæði í Húsi atvinnulífsins og í beinu streymi. Á fundinum fór Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, yfir samspil útboðsréttar og samkeppnisréttar og hlutverk SI. Þá fór Dagmar Sigurðardóttir, lögmaður og eigandi Lagastoðar og sérfræðingur í opinberum innk

Ritstjóri
Feb 10


Samkeppni og hið opinbera
Samkeppniseftirlitið hefur auglýst opinn fund á heimasíðu sinni sem haldinn verður fimmtudaginn 19. febrúar frá kl. 9:00 til 11:20 og ber heitið ,,Samkeppni og hið opinbera – Hvernig getum við eflt atvinnustarfsemi og fengið um leið meira fyrir minna? " Dagskráin er svohljóðandi: Vinnustofur með stjórnvöldum og innkaupaaðilum ríkisins dagana 17. til 18. febrúar Staðsetning: Hótel Reykjavík Grand, Sigtúni 8 Reykjavík – Háteigur Fimmtudaginn 19. febrúar efna Samkeppniseftirli

Ritstjóri
Feb 4


Námskeið í samningatækni
Félag atvinnurekenda og Vörustjórnunarfélag Íslands efna til námskeiðs í samningatækni 11. febrúar næstkomandi. Námskeiðið er sérsniðið að þörfum sölu- og innkaupafólks . Námskeiðið er hálfur dagur, frá kl. 9 til 12, og fer fram í fundarsal FA í Skeifunni 11. Farið verður yfir aðferðir og undirbúning samningaviðræðna við innlenda og erlenda aðila bæði í innkaupum og sölustarfi. Fjallað verður um lykilatriði aðferða við gerð tilboða fram að lokuðum samningi. Farið verður yfir

Ritstjóri
Jan 30
bottom of page