top of page

Borgarverk fær nær milljarða króna jarðvinnuverkefni

Writer: Ritstjóri
Ritstjóri
Sep 15
1 min read

Borgarverk fær nær milljarðs króna jarðvinnuverkefni við nýtt fangelsi


Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir hefur tekið tilboði Borgarverks ehf. í jarðvinnuframkvæmdir vegna nýs öryggisfangelsis að Stóra-Hrauni í sveitarfélaginu Árborg.


Tilboð Borgarverks nam 993.093.626 krónum með virðisaukaskatti og var lægsta gilda tilboðið sem barst í útboðinu. Tilboðið var metið hagstæðast samkvæmt valforsendum útboðsgagna og hefur verið tekið. FSRE stóð fyrir útboðinu fyrir hönd dómsmálaráðuneytisins. Um var að ræða almennt útboð sem auglýst var á Evrópska efnahagssvæðinu og rann tilboðsfrestur út 20. ágúst síðastliðinn.


Umfangsmiklar jarðvinnuframkvæmdir

Verkið felur meðal annars í sér aðstöðusköpun og uppsetningu vinnubúða, vegagerð, lagningu veitna og rafstrengja, afvötnun svæðisins, jarðvinnu vegna mannvirkja fyrsta áfanga, fyllingar og jarðvegsskipti auk uppsetningar ytri netgirðingar. Samkvæmt útboðsauglýsingu var gert ráð fyrir að framkvæmdir hæfust í september 2026 og að verkinu yrði lokið í ágúst 2027.


Fangelsið mun rúma 128 fanga

Nýja öryggisfangelsið á Stóra-Hrauni er fyrirhugað sem framtíðarlausn í stað núverandi fangelsis að Litla-Hrauni og er gert ráð fyrir að það geti rúmað alls 128 afplánunarfanga.


Uppbyggingunni verður skipt í áfanga. Í fyrsta áfanga er meðal annars fyrirhugað að reisa almenn fangarými fyrir 56 fanga, skólabyggingu, vinnustofu, vöruhús og hliðbyggingu auk bílastæða fyrir gesti og starfsfólk. Jarðvinnuframkvæmdirnar sem Borgarverk tekur nú að sér eru þannig meðal fyrstu stóru verkframkvæmdanna vegna uppbyggingar hins nýja fangelsis.

bottom of page