top of page

Fjársýslan tekur þátt í evrópsku samstarfi

Writer: Ritstjóri
Ritstjóri
Jun 25
1 min read

Samkvæmt frétt á heimasíðu Fjársýslunnar þá hefur Fjársýslan lokið ráðgjafarverkefni í samstarfi við Innovation Procurement Hubs, evrópskt verkefni á vegum Public Buyers Community sem styður opinbera aðila á Evrópska efnahagssvæðinu við að efla þekkingu á aðferðum fyrir innkaup á nýsköpun.


Verkefnið beindist að því að styrkja verklag Fjársýslunnar við undirbúning nýsköpunarinnkaupa, einkum á fyrstu stigum áður en formlegt innkaupaferli hefst. Áhersla var lögð á þarfagreiningu, samtal við markaðinn og mótun kröfulýsinga fyrir útboð. Í verkefninu voru einnig kynnt hagnýt dæmi og sniðmát sem geta nýst við að gera undirbúning innkaupa markvissari, skýrari og samræmdari.


Samkvæmt fréttinni tók ráðgjöfin jafnframt til stjórnunar og hugarfars í tengslum við nýsköpunarinnkaup, með það að markmiði að efla sameiginlegan skilning á því hvernig opinber innkaup geta stutt við nýsköpun og betri lausnir í opinberri þjónustu.


Þátttaka Fjársýslunnar er liður í áframhaldandi vinnu stofnunarinnar við að þróa opinber innkaup og styðja opinbera kaupendur við faglegan undirbúning, virkt markaðssamtal og aukna nýsköpun í innkaupum.

bottom of page