top of page

Innkaupaferli Þjóðarhallar á lokametrunum

Writer: Ritstjóri
Ritstjóri
Mar 19
2 min read

Gert er ráð fyrir að niðurstöður í samkeppnisútboði vegna byggingar Þjóðarhallar liggi fyrir á allra næstu dögum.


Vonast er til að í kjölfarið verði hægt að hefja framkvæmdir – um fjórum árum eftir að viljayfirlýsing um verkefnið var undirrituð.


Viljayfirlýsing um byggingu Þjóðarhallar var undirrituð vorið 2022. Á blaðamannafundi í janúar 2023 var tilkynnt að stefnt væri að því að höllin yrði reist fyrir lok árs 2025. Þá var áætlaður kostnaður um 15 milljarðar króna, en enn lá ekki fyrir hvernig ríki og borg myndu skipta kostnaði sín á milli.


Í janúar 2024 var félagið Þjóðarhöll ehf. stofnað, í 55% eigu ríkisins og 45% eigu borgarinnar. Í mars sama ár var opnað fyrir þátttöku í forvali samkeppnisútboðs vegna hönnunar og byggingar hallarinnar.


Gert er ráð fyrir að Þjóðarhöllin rísi sunnan við Laugardalshöll, nær Suðurlandsbraut. Hún verður um 19 þúsund fermetrar að stærð, með sæti fyrir 8.600 áhorfendur og allt að 12 þúsund manns á viðburðum.


Upphaflega var gert ráð fyrir að niðurstaða forvals lægi fyrir um sumarið 2024, en í desember það ár var tilkynnt að þrjú teymi hefðu verið valin áfram í ferlinu. Síðan þá hefur lítið heyrst opinberlega af stöðu mála, þó vinna hafi haldið áfram á bak við tjöldin.


Ný ríkisstjórn tók við völdum á tímabilinu og stjórn Þjóðarhallar ehf. var endurnýjuð, líkt og oft gerist við stjórnarskipti. Aftur á móti hélt matsnefnd útboðsins áfram óbreytt, sem samkvæmt upplýsingum fréttastofu stuðlaði að því að verkefnið tafðist ekki.


Nú eru tvö teymi eftir í samkeppnisútboðinu. Þau hafa skilað inn gögnum reglulega til matsnefndar á undanförnu ári, og er ferlið nú komið á lokastig. Gert er ráð fyrir að niðurstöður liggi fyrir um miðjan mars. Þá mun skýrast betur hver endanlegur tímarammi verður og hver kostnaður verkefnisins verður. Vonir standa til að hægt verði að hefja framkvæmdir fljótlega í kjölfarið, um fjórum árum eftir fyrstu viljayfirlýsingu.


Inga Sæland, ráðherra íþróttamála, segir fjármögnun verkefnisins tryggða. „Þetta var eitt af okkar samkomulagi við stjórnarmyndunarborðið að reisa glæsilega þjóðarhöll. Því fyrr sem það gerist, því betra,“ segir hún.


Ef framkvæmdir geta hafist í vor verða um fjögur ár þar til stefnt er að því að einn riðill heimsmeistaramóts í handbolta 2031 fari fram á Íslandi, sem verður meðgestgjafi mótsins ásamt Danmörku og Noregi. Forsvarsmenn HSÍ hafa bent á að bygging Þjóðarhallar sé lykilforsenda þess að Ísland geti tekið þátt sem gestgjafi.

bottom of page