top of page

Kynning - Félag atvinnurekenda

  • Writer: Ritstjóri
    Ritstjóri
  • Jan 9
  • 2 min read

Updated: Feb 13


Á síðunni birtum við kynningar á aðilum sem tengjast framkvæmd opinberra innkaupa með einum eða öðrum hætti s.s. kynningar á aðilum sem falla undir lög um opinber innkaup og starfsmönnum þeirra. Markmið kynninganna er að auka þekkingu og skilning á starfsemi og hlutverki þessara aðila.

Hvert er lögform aðila? Hver er stofndagur hans, hlutverk og tilgangur ?

Félag atvinnurekenda eru frjáls félagasamtök sem voru stofnuð 21. maí 1928. FA gætir hagsmuna stórra sem smárra aðildarfyrirtækja með því að vera einarður talsmaður viðskiptafrelsis og heilbrigðrar samkeppni.

Hvernig tengist FA framkvæmd opinberra innkaupa og hvaða verkefnum hefur aðili sinnt er varða framkvæmd opinberra innkaupa síðustu ár ?  Lögfræðiþjónusta FA aðstoðar félagsmenn við samskipti við opinberar stofnanir vegna innkaupa; útboða, framkvæmdar rammasamninga o.fl. FA aðstoðar félagsmenn iðulega við kærur til kærunefndar útboðsmála. Þá hefur félagið ítrekað nýtt heimild félagasamtaka til að skjóta málum til nefndarinnar, skv. 105. grein laga um opinber innkaup. Með erindrekstri og aðhaldi gagnvart stjórnvöldum leitast FA við að stuðla að því að þau fari að lögunum um opinber innkaup, einkum og sér í lagi að skylda til að bjóða út innkaup vöru og þjónustu sé virt og að opinber innkaup stuðli að heilbrigðri samkeppni, m.a. með því að útboðsskilmálum sé ekki hagrætt þannig að eingöngu einn eða fáir bjóðendur eigi möguleika á að uppfylla þá. Þá hefur FA talað eindregið fyrir því að heilbrigð samkeppni ríki í veitingu útboðsþjónustu til opinberra aðila, en einkafyrirtæki eru ekki síður í stakk búin að standa fyrir útboðum en opinberar stofnanir.

Hefur FA sett sér einhverja stefnu eða markmið í innkaupamálum ? Stefna FA er að opinberar stofnanir fari í einu og öllu eftir lögunum um opinber innkaup, en á því er mikill misbrestur. Félagið hefur jafnframt talað fyrir því að Samkeppniseftirlitinu verði falið að hafa eftirlit með framkvæmd laganna um opinber innkaup, með svipuðum hætti og gerist í öðrum norrænum ríkjum.

Er eitthvað sérstakt sem mætti breyta þegar kemur að ákvæðum laga og reglna er varða framkvæmd opinberra innkaupa að mati FA ? Núverandi löggjöf skapar opinberum stofnunum yfirburðastöðu gagnvart einkaaðilum, sem bjóða útboðsþjónustu og leggur í raun hömlur á atvinnufrelsi þeirra. Að mati FA ætti að endurskoða löggjöfina með það að markmiði að heilbrigð samkeppni ríki á markaði fyrir útboðsþjónustu. Sömuleiðis mætti skoða að beita forstöðumenn ríkisstofnana, sem ekki fara að lögunum um opinber innkaup, viðurlögum. Þá er að mati félagsins mikilvægt að sjálfstætt eftirlit fari fram með lögunum um opinber innkaup. Það hlutverk er best komið hjá Samkeppniseftirlitinu. 

Ef FA ætti að skrifa eitt orð er tengist opinberum innkaupum, hvaða orð væri það? Samkeppni

bottom of page