top of page

Leiðbeiningar fyrir bjóðendur

Writer: Ritstjóri
Ritstjóri
Apr 17
1 min read

Birgir Örn Birgisson, sérfræðingur Consensa


Consensa hefur unnið sérstakar leiðbeiningar fyrir bjóðendur sem munu hér eftir fylgja sem viðauki með útboðsgögnum í útboðum fyrirtækisins. Tilgangur leiðbeininganna er að veita bjóðendum skýrar og hagnýtar upplýsingar um tilboðsgerð og þátttöku í útboðum, með það að markmiði að stuðla að skilvirkara útboðsferli, betri tilboðum og hagkvæmari samningum.


Í leiðbeiningunum er meðal annars fjallað um mikilvægi þess að kynna sér útboðsgögn tímanlega, nýta fyrirspurnarfrest með markvissum hætti og koma á framfæri athugasemdum eða óskum um breytingar þegar tilefni er til. Jafnframt er lögð áhersla á að bjóðendur gegni mikilvægu hlutverki sem sérfræðingar á sínu sviði og geti með ábyrgri þátttöku stutt við betri niðurstöðu í útboðsferlinu.


Eftir því sem best er vitað eru þetta fyrstu leiðbeiningar sinnar tegundar sem gefnar hafa verið út á Íslandi.


Með þessu vill Consensa efla gæði útboðsferla, draga úr misskilningi og styðja við fagleg og gagnsæ samskipti milli kaupanda og bjóðenda.



bottom of page