Leiðbeiningar OECD um baráttu gegn ólögmætu samráði í opinberum innkaupum
- Ritstjóri

- Feb 18
- 1 min read

Þann 16. febrúar 2026 gaf OECD út Leiðbeiningar um baráttu gegn ólögmætu samráði í opinberum innkaupum út á íslensku. Leiðbeiningarnar fela í sér safn leiðbeininga og góðra starfshátta sem ætlað er að styðja opinbera starfsmenn við að fyrirbyggja, greina og tilkynna ólögmætt samráð í opinberum innkaupaferlum.
Leiðbeiningarnar styðja við innleiðingu á tilmælum OECD um baráttu gegn samráði í opinberum útboðum [OECD-LEGAL-0396]. Þær innihalda almennar meginreglur sem hægt er að aðlaga að hverju útboðsferli og fjalla að meginstefnu um eftirfarandi: greiningu á tegundum samráðs í útboðum og markaðsgerð sem auðveldar samráð, samvinnu opinberra aðila í baráttunni gegn samráði, hönnun samkeppnishvetjandi útboða, viðvörunarmerki sem geta bent til samráðs og tilkynningu gruns um samráð til samkeppnisyfirvalda.
Leiðbeiningarnar má finna á íslensku með því að heimsækja eftirfarandi vefslóð: https://www.oecd.org/is/publications/lei-beiningar-oecd-um-barattu-gegn-ologmaetu-samra-i-i-opinberum-innkaupum-2025-uppfaersla_4ff00a9a-is.html


