Má opinber kaupandi óska eftir ákveðnu vörumerki?


Má sveitarfélag ákveða að kaupa eingöngu Apple iPad vegna þess að slík tæki eru þegar í notkun? Nýleg niðurstaða þýsks dómstóls sýnir að fyrirliggjandi tækniumhverfi getur skipt máli, en það eitt nægir ekki til þess að loka samkeppni fyrir öðrum framleiðendum. Sama grundvallarregla gildir við opinber innkaup hér á landi.
Þýska borgin Datteln bauð nýlega út kaup á 665 spjaldtölvum fyrir skóla borgarinnar. Útboðið gerði ráð fyrir Apple iPad-tækjum, en slík tæki voru þegar mikið notuð í skólunum og miðlægt Mobile Device Management-kerfi, eða MDM, hafði verið byggt upp utan um þau.
Borgin taldi að kaup á tækjum frá öðrum framleiðanda gætu kallað á aukinn kostnað, breytingar á tæknikerfum og vandamál vegna samhliða reksturs ólíkra tækja. Samsung mótmælti útboðinu og taldi að með því að gera kröfu um Apple-tæki hefði öðrum framleiðendum í reynd verið útilokað að keppa um samninginn.
Æðri héraðsdómstóllinn í Düsseldorf tók undir þau sjónarmið og felldi útboðið úr gildi með ákvörðun 2. september 2026. Dómstóllinn taldi að opinberum kaupanda gæti vissulega í ákveðnum tilvikum verið heimilt að takmarka innkaup við tiltekinn framleiðanda, en tæknilegar eða fjárhagslegar ástæður fyrir slíkri takmörkun yrðu að vera skýrar, raunverulegar og eftir atvikum studdar gögnum.
„Við erum þegar með þetta“ sjónarmið duga ekki ein og sér
Það sem gerir málið sérstaklega áhugavert er að val kaupandans á Apple var ekki úr lausu lofti gripið. Skólarnir voru þegar með Apple-tæki og MDM-kerfi sem tengdist því tækniumhverfi. Rök borgarinnar byggðu því meðal annars á samhæfni, stjórnun tækjanna og kostnaði við að breyta kerfinu eða reka fleiri en eitt kerfi samhliða.
Dómstóllinn taldi slík sjónarmið geta verið málefnaleg. Vandinn var hins vegar sá að rökstuðningurinn var ekki nægilega ítarlegur. Upplýsingar um kostnað við breytingar á MDM-kerfinu voru að hluta taldar ófullnægjandi eða ótrúverðugar og fullyrðingar um tæknilega erfiðleika við samhliða rekstur mismunandi tækja voru of almennar.
Niðurstaðan felur því ekki í sér að kaupandi verði alltaf að samþykkja allar hugsanlegar tæknilausnir. Hún undirstrikar hins vegar að fyrri ákvörðun um tiltekinn framleiðanda má ekki sjálfkrafa verða grundvöllur þess að sami framleiðandi njóti í raun einkaréttar á öllum síðari innkaupum. Annars getur myndast svokallað lock-in, eða tæknileg innilokun, þar sem hver ný innkaupaákvörðun styrkir stöðu þess framleiðanda sem fyrir er og samkeppni minnkar smám saman.
Íslensku reglurnar eru skýrar
Sambærilega reglu er að finna í 49. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup. Þar kemur fram að tæknilýsingar skuli veita fyrirtækjum jöfn tækifæri og megi ekki leiða til ómálefnalegra hindrana á samkeppni.
Enn fremur segir sérstaklega að tæknilýsingar skuli ekki vísa til sérstakrar gerðar, framleiðanda, vinnslu, vörumerkis, einkaleyfis, tegundar, uppruna eða framleiðslu með þeim afleiðingum að fyrirtækjum sé mismunað eða ákveðin fyrirtæki útilokuð frá þátttöku, nema slík tilvísun helgist beinlínis af efni samningsins. Þegar ekki er unnt að lýsa efni samnings með öðrum hætti er heimilt að nota slíka tilvísun, en þá skal henni fylgja orðalagið „eða jafngildur“ eða sambærilegt orðalag.
Athygli vekur einnig að samkvæmt 24. gr. laganna skal gæta ákvæða 49. gr. um tæknilýsingar jafnvel við innkaup undir innlendum viðmiðunarfjárhæðum. Reglan um hlutlausar tæknilýsingar takmarkast því ekki við innkaup sem eru útboðsskyld.
„Eða jafngildur“ jafnvel þótt vörumerki sé ekki nefnt á nafn
Álitaefnið nær lengra en að því hvort nafn framleiðanda sé beinlínis tilgreint í útboðsgögnum. Evrópudómstóllinn fjallaði um þetta í apríl síðastliðnum í máli C-568/24, Sof Medica. Þar var boðið út skurðaðgerðarvélmenni og gerðar tæknikröfur meðal annars um uppbyggingu, hreyfanleika, þyngd og fyrirkomulag arma búnaðarins. Þótt ákveðið vörumerki væri ekki beinlínis nefnt gátu tæknikröfurnar í reynd beint innkaupunum að ákveðinni tegund lausnar.
Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að slíkar kröfur yrðu að vera settar fram með fyrirvara um „eða jafngilt“, nema viðkomandi eiginleikar leiddu óhjákvæmilega af sjálfu efni samningsins.
Þetta skiptir máli vegna þess að hægt er að skrifa tæknilýsingu sem er formlega laus við tilvísanir til vörumerkja en lýsir vörunni svo nákvæmlega, til dæmis með hliðsjón af tækniblaði eins framleiðanda, að aðeins ein vara á markaðnum getur uppfyllt kröfurnar. Slík framsetning getur verið jafn samkeppnishamlandi og að tilgreina vörumerkið sjálft í útboðsgögnunum.
Kaupandi má skilgreina þörfina
Grundvallaratriðið er þó að opinber innkaupalöggjöf tekur ekki af kaupanda réttinn til að ákveða hvað hann þarf að kaupa. Kaupandi getur til dæmis þurft búnað sem:
vinnur með fyrirliggjandi kerfum,
uppfyllir tiltekin afköst,
kemst fyrir í ákveðnu rými,
getur tengst öðrum búnaði,
uppfyllir tilteknar öryggis- eða rekstrarkröfur,
eða dregur úr raunverulegum rekstrar- og líftímakostnaði.
Eftir því sem kröfurnar þrengja meira að mögulegum lausnum verður hins vegar mikilvægara að geta sýnt fram á hvers vegna viðkomandi eiginleiki er nauðsynlegur. Þar liggja mörkin milli þess að skilgreina þörfina og þess að skilgreina fyrirfram hvaða vara eigi að vinna útboðið.
Spurningin ætti því ekki að vera: „Hvaða vöru viljum við?“
Við undirbúning tæknilýsingar getur verið gagnlegt að byrja ekki á því að spyrja hvaða tæki eða vörumerki kaupandi vill kaupa, heldur: Hvaða þörf þarf varan að uppfylla?
Sé til dæmis talið nauðsynlegt að nýr búnaður sé samhæfður eldri búnaði ætti að vera hægt að útskýra hvaða samhæfni sé nauðsynleg, hvaða afleiðingar aðrar lausnir hefðu og hvaða kostnaður eða tæknileg áhætta fylgdi þeim.
Nýi þýski iPad-úrskurðurinn undirstrikar að það nægir ekki eitt og sér að vísa til þess að einfaldara, öruggara eða hagkvæmara sé að halda áfram að kaupa sama vörumerki. Þegar tæknileg krafa leiðir til þess að samkeppni er takmörkuð þarf kaupandi að geta sýnt fram á, með hlutlægum og eftir atvikum tölulegum rökum, að takmörkunin byggist á raunverulegri þörf og gangi ekki lengra en nauðsynlegt er.


