top of page

Opinber innkaup sem afl í grænum umskiptunum

Writer: Ritstjóri
Ritstjóri
Jun 4
3 min read


Í Noregi hefur ríkisfyrirtækið Nye Veier AS, sem annast uppbyggingu og rekstur stórra vegaframkvæmda, og norsku umhverfissamtökin ZERO hvatt til þess að opinber innkaup verði notuð með mun markvissari hætti til að draga úr losun í byggingar- og mannvirkjageiranum.


Boðskapurinn er skýr: loftslagsmál eru ekki lengur aukaatriði í opinberum útboðum heldur eru þau í auknum mæli að verða ein af grundvallarforsendum innkaupa. Útboð framtíðarinnar munu því ekki einungis vinnast á verði, heldur einnig á því hvernig bjóðendur geta sýnt fram á raunverulegan og skjalfestan samdrátt í losun.


Í nýlega uppfærðum gátlista um loftslagsaðgerðir í mannvirkjageiranum beina Nye Veier og ZERO sjónum sérstaklega að því hvernig opinber innkaup geta orðið eitt mikilvægasta tækið til að draga úr losun í samgöngumannvirkjum og öðrum framkvæmdum.


Gátlistinn var fyrst gefinn út árið 2020 en hefur nú verið endurskoðaður í ljósi þess að loftslags- og umhverfiskröfur hafa fengið mun veigameiri stöðu í norsku regluverki um opinber innkaup. Þar er meðal annars vísað til þess að loftslag og umhverfi eigi að vega að jafnaði 30% í opinberum innkaupum í Noregi og að opinberum aðilum beri skylda til að hafa skýra innkaupastefnu.


Loftslagskröfur eiga að vega á móti lægsta verði

Markmið endurskoðaða gátlistans er að ýta mannvirkjageiranum í loftslagsvænni átt. Hann á meðal annars að veita opinberum innkaupaaðilum leiðbeiningar um hvernig hægt sé að undirbúa og framkvæma loftslagsaðgerðir við mótun nýrra framkvæmda- og mannvirkjaverkefna.


Í gátlistanum er lögð áhersla á að opinberir kaupendur velji matsviðmið og kröfur sem leiða raunverulega til minni losunar. Jafnframt er lögð aukin áhersla á virka samningseftirfylgni. Það nægir ekki lengur að setja almennar og óljósar yfirlýsingar um loftslagsmál inn í útboðsgögn.


Nye Veier og ZERO leggja áherslu á að innkaupaaðilar þurfi að kalla eftir áþreifanlegum gögnum um losun og samdrátt í losun. Þar með færist meiri ábyrgð á opinbera kaupendur að skilgreina skýrt hvaða árangri þeir vilja ná og hvernig bjóðendur eigi að sýna fram á hann.


Meðal þess sem lagt er til að opinberir innkaupaaðilar geri er að:


  • krefjast loftslagsbókhalds eða losunaráætlana,

  • óska eftir EPD-yfirlýsingum og öðrum staðfestingargögnum,

  • verðlauna samdrátt í losun við mat tilboða,

  • nota loftslagsbónusa í samningum,

  • gera kröfur um rafknúnar vinnuvélar og jarðefnaeldsneytislausa flutninga,

  • fylgja loftslagskröfum eftir með virkum hætti á samningstímanum.


Þetta sendir jafnframt skýr skilaboð til verktaka og annarra birgja. Þeir sem vilja vera samkeppnishæfir í opinberum útboðum þurfa í auknum mæli að geta sýnt fram á með skjalfestum hætti hvernig þeir vinna að loftslagsmálum, hvaða lausnir þeir bjóða og hvaða mælanlegi árangur fylgir þeim.


Mikilvægt að virkja markaðinn snemma

Í leiðbeiningunum er einnig bent á að rafknúnar vinnuvélar, jarðefnaeldsneytislausir efnisflutningar og lágkolefnisefni séu í hraðri þróun. Opinberir verkkaupar eru því hvattir til að nýta innkaupamátt sinn til að ýta undir frekari þróun á markaði.


Sérstaklega er lögð áhersla á snemmbært samtal við markaðinn og virka aðkomu verktaka og birgja áður en útboðsgögn eru fullmótuð. Slíkt getur skipt sköpum ef markmiðið er að nýjar loftslags- og umhverfislausnir komist hraðar í almenna notkun.


Þá er einnig bent á að stærstu loftslagsáhrifin ráðist oft mun fyrr í ferlinu en margir gera sér grein fyrir. Stærsti samdrátturinn í losun næst gjarnan á skipulags-, hönnunar- og hugmyndastigi verkefna, en ekki endilega á sjálfu framkvæmdastiginu.


Innkaup á frumstigi geta skipt miklu máli

Í þessu samhengi er meðal annars nefnt að styttri veglínur, endurnýting núverandi mannvirkja, minni inngrip í land og skynsamlegri efnisnotkun geti bæði dregið úr losun og lækkað kostnað. Þannig geta innkaup á frumstigi verkefna, ráðgjöf og þróun lausna orðið mun mikilvægari loftslagsverkfæri en oft hefur verið talið.


Þótt gátlistinn sé sérstaklega miðaður við mannvirkjageirann í Noregi eiga mörg sjónarmiðin fullt erindi við opinber innkaup almennt. Hann gefur skýra vísbendingu um þá þróun sem á sér stað í opinberum innkaupum á Norðurlöndum: að loftslags- og umhverfissjónarmið eru að færast úr því að vera almenn stefnumarkmið yfir í að verða mælanlegar, skjalfestar og samningsbundnar kröfur.

bottom of page