top of page

Sorpa fær ekki að áfrýja

Writer: Ritstjóri
Ritstjóri
Jan 12, 2024
1 min read

Hæstirétt­ur hef­ur hafnað Sorpu um áfrýj­un­ar­leyfi fyr­ir rétt­in­um í bóta­máli Íslenskra aðal­verk­taka gegn Sorpu. Í Lands­rétti var Sorpa dæmd til að greiða Íslensk­um aðal­verk­tök­um 88 millj­ón­ir í bæt­ur í tengsl­um við útboð á gas- og jarðgerðar­stöð á Álfs­nesi (GAJA).


Hæstirétt­ur hafnaði beiðni Sorpu um að taka málið fyr­ir á þeim grund­velli að ekki væri talið að úr­lausn máls­ins fyr­ir Hæsta­rétti hefði veru­legt al­mennt gildi eða að málsmeðferð Lands­rétt­ar hefði verið stór­lega ábóta­vant eða dóm­ur­inn ber­sýni­lega rang­ur.

 

Frá­vikstil­boð

Fjög­ur til­boð bár­ust í verkið en ekki var gengið að neinu þeirra sök­um þess að þau voru öll 10% hærri en kostnaðar­áætl­un verks­ins. Í kjöl­farið ákvað Sorpa að hefja samn­ings­ferli við þá kaup­end­ur sem upp­fylltu fjár­hags­leg­ar og tækni­leg­ar kröf­ur.


Þrjú fé­lög til­kynntu þátt­töku í samn­ings­ferl­inu, þar á meðal Ístak, sem fékk verkið, og Íslensk­ir aðal­verk­tak­ar. Úr varð að ekki var gengið að til­boði ÍAV held­ur Ístaks.


Íslensk­ir aðal­verk­tak­ar komust þó á snoðir um það að mót­bjóðand­inn hefði lagt fram frá­vikstil­boð sem geng­ur í ber­högg við lög um jafn­ræði bjóðenda og gagn­sæi við inn­kaup.


Fram kem­ur í dómi Lands­rétt­ar að skil­mál­arn­ir sem giltu um samn­ings­ferlið hefðu verið mis­vís­andi og til þess falln­ir að valda mis­skiln­ingi um að hvaða marki þeim væri heim­ilt að víkja frá skil­mál­um samn­ings­kaup­anna með frá­vik­um og und­anþágum. Þannig var Ístaki talið það heim­ilt en Íslensk­um aðal­verk­tök­um ekki.rði auglýst á fyrri hluta þessa árs,“ segir í svari Betri samgangna við fyrirspurn Morgunblaðsins.


bottom of page