top of page

Sveitarfélög sögð hafa ofgreitt yfir 100 milljónir vegna sorphirðu

Writer: Ritstjóri
Ritstjóri
Sep 16
2 min read

Ofrukkun vegna sorphirðu yfir 100 milljónir

Íslenska gámafélagið ofrukkaði Garðabæ og Mosfellsbæ um samtals rúmlega 100 milljónir króna vegna sorphirðu samkvæmt umfjöllun Heimildarinnar.


Fram kemur í fréttinni að ráðgjafarfyrirtækið Resource International hafi verið fengið til að fara yfir greiðslur sveitarfélaganna til Íslenska gámafélagsins á árunum 2013 til 2021. Samkvæmt þeirri yfirferð námu ofgreiðslur Garðabæjar um 74 milljónum króna á núvirði á árunum 2017 til 2020 og ofgreiðslur Mosfellsbæjar um 43 milljónum króna á núvirði á árunum 2017 til 2021.


Samkvæmt umfjöllun Heimildarinnar voru frávik í greiðslum til staðar stóran hluta þess tímabils sem skoðað var, en þau jukust verulega frá árinu 2017. Þegar ofgreiðslurnar komu í ljós kröfðust sveitarfélögin endurgreiðslu.


Vísaði til villandi útboðsgagna

Í frétt Heimildarinnar kemur jafnframt fram að Íslenska gámafélagið hafi í samskiptum við sveitarfélögin vísað til útboðsgagnanna og talið að þau hefðu verið villandi. Í tölvupósti starfsmanns fyrirtækisins til Mosfellsbæjar var því haldið fram að sveitarfélagið væri ekki að öllu leyti laust undan ábyrgð á þeirri stöðu sem upp hefði komið.


Afstaða fyrirtækisins breytir ekki niðurstöðu þeirrar yfirferðar sem gerð var á greiðslunum, en hún vekur athygli á öðru mikilvægu atriði við opinber innkaup: hversu miklu skiptir að verðákvæði, reikningsgerð og aðrir samningsskilmálar séu skýrir og vandlega ígrundaðir áður en samningur er gerður.


Skilmálar þurfa að vera vel ígrundaðir

Við gerð útboðsgagna er ekki nóg að tryggja að unnt sé að bera saman tilboð og velja hagstæðasta tilboðið við lok útboðs. Gögnin þurfa jafnframt að mynda skýran og framkvæmanlegan ramma um framkvæmd samningsins allan samningstímann.


Þetta á ekki síst við um langtímasamninga um þjónustu þar sem greiðslur geta numið verulegum fjárhæðum á hverju ári. Þá þarf meðal annars að liggja skýrt fyrir hvernig verð er ákvarðað og breytist, hvaða einingar heimilt er að reikningsfæra, hvaða gögn skulu fylgja reikningum, hvernig kaupandi getur sannreynt innheimtu og hvaða úrræði hann hefur ef reikningsgerð er ekki í samræmi við samning. Skýr samningsákvæði um eftirlit, leiðréttingu reikninga, endurgreiðslu og eftir atvikum févíti eða önnur vanefndaúrræði geta þannig skipt verulegu máli þegar samningur er framkvæmdur um margra ára skeið.


Óskýrleiki getur skapað réttaróvissu

Málið undirstrikar einnig að óskýrir samningsskilmálar geta skapað verulega réttaróvissu síðar á samningstímanum. Við túlkun samnings getur skipt máli hvernig ákvæði er orðað, samhengi þess og hvor aðilinn samdi viðkomandi skilmála. Óskýrleiki kann eftir atvikum, samkvæmt almennum sjónarmiðum um samningstúlkun, að vera túlkaður þeim sem samdi ákvæðið í óhag.


Af þeim sökum skiptir máli að hugsa framkvæmd samningsins til enda þegar útboðsgögn eru samin. Sérstaklega þarf að gera ráð fyrir þeim álitaefnum sem fyrirsjáanlega geta komið upp við reikningsgerð og uppgjör, í stað þess að treysta á að úr þeim verði leyst með túlkun eftir að ágreiningur hefur þegar myndast. Tilvik þar sem tugir eða jafnvel hundruð milljóna króna verða síðar ágreiningsefni sýna hversu fjárhagslega mikilvæg þessi atriði geta verið fyrir opinbera aðila. Vönduð útboðsgögn snúast því ekki aðeins um útboðsferlið sjálft heldur einnig um að skapa traustan grundvöll fyrir samningsstjórnun, eftirlit og rétta framkvæmd samningsins næstu ár.


bottom of page