Umfangsmiklar breytingar á innkaupareglum ESB


Drög að nýrri heildstæðri reglugerð Evrópusambandsins um opinber innkaup hafa lekið og verið birt í evrópskum fjölmiðlum. Drögin eru óformlegt vinnuskjal framkvæmdastjórnar ESB og geta því tekið breytingum áður en endanleg tillaga verður lögð fram. Nú er áformað að framkvæmdastjórnin kynni tillöguna formlega 9. september 2026. Verði tillagan að veruleika er um að ræða umfangsmestu breytingar á innkaupareglum ESB frá árinu 2014.
Ein reglugerð í stað þriggja tilskipana
Samkvæmt drögunum stendur til að fella núgildandi innkaupatilskipanir ESB, þ.e. tilskipanir 2014/23/ESB, 2014/24/ESB og 2014/25/ESB, úr gildi og sameina reglurnar í eina heildstæða reglugerð. Reglugerð gildir með beinum hætti í aðildarríkjum ESB og myndi því draga verulega úr svigrúmi einstakra ríkja til mismunandi innleiðingar. Markmiðið er meðal annars að einfalda reglurnar, auka samræmi og draga úr stjórnsýslubyrði kaupenda og fyrirtækja.
Helstu breytingar samkvæmt drögunum eru meðal annars eftirfarandi:
Samningskaup með auglýsingu og mögulegum samningaviðræðum yrðu almenna innkaupaferlið. Jafnframt yrði komið á einfölduðu kviku innkaupaferli fyrir endurtekin kaup og sérstöku nýsköpunarferli.
Opinberir kaupendur þyrftu að birta innkaupaáætlun við upphaf hvers fjárhagstímabils. Markaðskannanir yrðu jafnframt skýrari og mikilvægari hluti af undirbúningi innkaupa.
Samningar yrðu að meginstefnu til boðnir út á grundvelli besta hlutfalls milli verðs og gæða. Gæðaþættir ættu almennt að vega að minnsta kosti 30% og að minnsta kosti 50% þegar um mannaflsfrek verkefni er að ræða. Heimilt yrði að víkja frá þessu ef gæði væru tryggð með öðrum hætti, en kaupandi þyrfti þá að rökstyðja þá ákvörðun.
Kaupendum yrði veitt aukið svigrúm til að taka mið af evrópskum uppruna og takmarka aðgang fyrirtækja, vara og þjónustu frá ríkjum sem njóta ekki markaðsaðgangs samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum ESB. Meðal annars væri heimilt, að tilteknum skilyrðum uppfylltum, að hafna tilboði ef minna en 50% af verðmæti þess teldist eiga uppruna innan ESB eða ríkja sem njóta samsvarandi markaðsaðgangs.
Umhverfisleg, félagsleg og nýsköpunartengd sjónarmið fengju aukið vægi. Gert er ráð fyrir að framkvæmdastjórnin geti sett bindandi græn innkaupaviðmið fyrir tiltekna vöruflokka.
Aukið tillit yrði tekið til öryggis, netöryggis, afhendingaröryggis, mikilvægra innviða og hættu á óeðlilegum áhrifum eða yfirráðum frá þriðju ríkjum.
Hæfiskröfur þyrftu að vera nauðsynlegar og hóflegar. Kröfur um fyrri reynslu af samningum við opinbera aðila yrðu takmarkaðar og krafa um lágmarksársveltu mætti að jafnaði ekki vera hærri en sem nemur 50% af áætluðu verðmæti samnings.
Komið yrði á sameiginlegra stafrænu innkaupaumhverfi innan ESB, meðal annars með rafrænum fyrirtækjaskilríkjum, endurnýtingu hæfisgagna og sameiginlegum gagnasvæðum um opinber innkaup.
Drögin eru enn á vinnslustigi og geta breyst bæði áður en framkvæmdastjórnin leggur fram formlega tillögu og síðar í meðferð ráðherraráðsins og Evrópuþingsins. Þau gefa þó sterka vísbendingu um að stefnt sé að verulega samræmdara, stafræna og markmiðadrifnara innkauparegluverki.


