Gengið eftir svörum um vildarpunkta
- Ritstjóri

- Feb 24, 2024
- 1 min read

Félag atvinnurekenda (FA) hefur ítrekað erindi sitt til forseta Alþingis vegna notkunar alþingismanna og annarra ríkisstarfsmanna á vildarpunktum flugfélaga sem aflað er við ferðalög á kostnað skattgreiðenda. Í erindinu er forseti þingsins beðinn að svara fjórum spurningum um hvort slík notkun samræmist lögum, siðareglum og reglum um greiðslu ferðakostnaðar.
FA sendi þingforseta fyrst bréf í október vegna upplýsinga um að þingmenn nýttu vildarpunkta í eigin þágu, einkum vegna viðskipta við Icelandair, þrátt fyrir að ríkið hafi einnig rammasamning við Fly Play. FA telur slíka háttsemi ganga gegn lögum, siðareglum þingsins og reglum fjármála- og efnahagsráðuneytisins, þar sem kveðið er á um að fríðindi vegna farmiðakaupa skuli renna til þess ríkisaðila sem greiðir ferðina.
Í svari frá skrifstofu Alþingis í janúar var vísað til kæru Fly Play til kærunefndar útboðsmála og því haldið fram að beðið yrði með efnisleg viðbrögð. Kærunefndin úrskurðaði hins vegar 19. febrúar að möguleg brot gegn reglum ráðuneytisins féllu ekki undir valdsvið hennar og að ekki hefði verið sýnt fram á brot gegn rammasamningi Ríkiskaupa.
FA ítrekar nú að erindi félagsins snúi ekki að rammasamningnum heldur að því hvort þingmenn geti þegið persónuleg fríðindi vegna ferða á kostnað skattgreiðenda. Að mati félagsins er um að ræða háttsemi sem stenst hvorki lög, siðareglur né almenn siðferðileg viðmið og telur FA að Alþingi eigi nú að geta svarað erindinu efnislega, enda hafi málið verið til skoðunar um fjóra mánaða skeið.


