top of page

Eina tilboðið frá Icelandair langt yfir áætlun

  • Writer: Ritstjóri
    Ritstjóri
  • Feb 26
  • 1 min read

Eitt tilboð barst í útboði Vegagerðarinnar fyrir áætlunarflug milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Tilboðið kom frá Icelandair og er verulega yfir kostnaðaráætlun verkkaupa. Samkvæmt opnunarskýrslu, sem birt var á heimasíðu Vegagerðarinnar, var áætlaður verktakakostnaður 1,341 milljarðar króna en tilboð Icelandair nemur 3,527 milljörðum króna, sem er um 2,2 milljörðum yfir áætlun.


Útboðið var auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu í janúar og frestur til að skila inn tilboðum rann út á þriðjudaginn. Um var að ræða sérleyfissamning sem fól í sér rekstur á áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Ísafjarðar.


Fjallað var um málið í frétt Vísis í dag og kom þar fram að Vegagerðin væri að skoða málið og verið væri að fara yfir tilboðið og Vegagerðin gæti ekki tjáð sig nánar um málið að svo stöddu.


bottom of page