top of page


Ólögmætt samráð
Danska Samkeppnis- og neytendastofnunin (Konkurrence- og Forbrugerstyrelsen) hefur tekið saman lista yfir 12 vísbendingar sem allar geta bent til þess að um sé að ræða ólögmætt samráð milli fyrirtækja í tengslum við framkvæmd opinberra innkaupa. Slíkt samráð getur komið fram með ýmsum hætti við undirbúning, framsetningu og mat tilboða. Stundum birtist það í því hvernig tilboð eru skrifuð og uppbyggð, en í öðrum tilvikum í verðlagningu eða í mynstrum sem koma fram þvert á fl

Ritstjóri
Dec 10, 2025


Sex handteknir eftir húsleit á níu stöðum
Embætti héraðssaksóknara framkvæmdi í dag húsleitir og aðrar aðgerðir til þess að afla gagna og upplýsinga vegna ætlaðra brota tveggja fyrirtækja á markaði fyrir úrgangsþjónustu á samkeppnislögum. Rannsóknin beinist að ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna og grundvallast á kæru Samkeppniseftirlitsins. Samhliða rannsókn embættis héraðssaksóknara á ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna hefur Samkeppniseftirlitið til rannsóknar hugsanleg brot hlutaðeigandi fyrirtækja á ba

Ritstjóri
Dec 4, 2025


Aðskilnaðarkvíði ríkisforstjóra
Í aðsendum pistli á mbl.is eftir Ólaf Stephensen , framkvæmdastjóra Félag atvinnurekenda , er því haldið fram að opinberir aðilar, einkum Veðurstofa Íslands , hafi ekki uppfyllt lagaskyldur um fjárhagslegan aðskilnað samkeppnisrekstrar frá lögbundinni starfsemi. Í pistlinum er rakið að Veðurstofan hafi hvorki birt sérstaka gjaldskrá né haldið aðgreindum reikningum fyrir samkeppnisþjónustu sína, þrátt fyrir fyrri ábendingar og kröfur Samkeppniseftirlitið . Ólafur gagnrýnir að

Ritstjóri
Oct 5, 2025


Ákvörðun - mál nr. 20/2025
Kæran málsins laut að útboði Fjársýslu ríkisins fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðuneytisins auðkennt auðkennt „Multidisciplinary teams for enhancement of digital services“. Kæra málsins barst á biðtíma samningsgerðar og hafði í för með sér sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar. Ágreiningur málsins varðaði m.a. það hvort varnaraðili hafi brotið gegn lögum nr. 120/2016 og 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 með því að byggja endanlega stigagjöf bjóðenda varðandi þekkingu og reyns

Ritstjóri
Aug 25, 2025


Fyrirkomulag innkaupamála
Aðsend grein - Birt í ViðskiptaMogganum þann 8.3.2025 Consensa veitir viðskiptavinum sínum innkaupaþjónustu og innkauparáðgjöf. Félagið veitir innkauparáðgjöf og tekur að sér framkvæmd útboða óháð tegund innkaupa. Consensa hóf að bjóða opinberum aðilum upp á þjónustu sína árið 2019. Frá stofnun hefur félagið séð um yfir 100 útboð fyrir íslensk sveitarfélög. Árangur Consensa hefur vakið eftirtektarverða athygli bæði hérlendis og erlendis. Fyrir breytingu á lögum um opinber inn

Ritstjóri
Mar 8, 2025


Hagsýni í rekstri ríkisins
Þann 2. janúar 2025 óskaði ríkisstjórnin eftir tillögum, hugmyndum og sjónarmiðum um hvernig hægt væri að hagræða í rekstri ríkisins. Hægt er að senda inn tillögur í samráðsgátt til 23. janúar og var fólk hvatt til að hafa tillögurnar skýrar. Metþátttaka var í samráðinu en alls bárust 3.985 umsagnir. Aldrei áður höfðu fleiri umsagnir borist um eitt mál í samráðsgátt stjórnvalda. Fjögurra manna hagræðingarhópur sem skipaður var af forsætisráðherra var svo falið ítarlegri úrvin

Ritstjóri
Mar 5, 2025


Hagræðum með því að endurskoða umgjörð útboðsmála
Valur Þráinsson / aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins Ef stjórnvöld vilja hagræða með því að koma í veg fyrir samráð í útboðum er hluti af lausninni að auka fjárveitingar til eftirlitsins. Hönnun útboða og eftirlit með virkri samkeppni milli þátttakenda hefur veruleg áhrif á kjör hins opinbera í innkaupum sínum. Opinber innkaup nema háum fjárhæðum á hverju ári, og því er til mikils að vinna fyrir ríkissjóð og skattgreiðendur að sem best kjör bjóðist. Til að setja umfang

Ritstjóri
Mar 1, 2025


Svanurinn viðurkenndur í opinberum innkaupum í Bandaríkjunum
Svansvottaðar hreinlætis- og textílvörur eru nú meðal þeirra viðmiðaflokka sem viðurkenndir eru í opinberum innkaupum í Bandaríkjunum. Svansvottaðar vörur hafa hlotið enn sterkari stöðu á alþjóðavettvangi þar sem tveir viðmiðaflokkar Svansins hafa nú verið viðurkenndir af Umhverfisstofnun Bandaríkjanna (EPA). Listinn sem Svansvottaðar vörur eru nú á er uppfærður reglulega og er markmið hans að aðstoða opinbera aðila og fyrirtæki við að finna vörur sem uppfylla strangar umhver

Ritstjóri
Feb 20, 2025


Matslíkön og matsaðferðir
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið út nýjar leiðbeiningar um matslíkön og matsaðferðir í opinberum innkaupum. Markmið leiðbeininganna er að stuðla að skýrari ferlum og auknu gagnsæi í innkaupum ríkis, félaga í ríkiseigu og sveitarfélaga. Stefna ríkisins í innkaupum leggur áherslu á að fræðsla um innkaup séu aukin jafnt fyrir innkaupafólk sem stjórnendur. Leiðbeiningunum er ætlað bæta þessa þekkingu og að stuðla að auknu gagnsæi og skilvirkni útboðsferla. Vel útfærð ú

Ritstjóri
Oct 25, 2024


Gengið eftir svörum um vildarpunkta
Félag atvinnurekenda (FA) hefur ítrekað erindi sitt til forseta Alþingis vegna notkunar alþingismanna og annarra ríkisstarfsmanna á vildarpunktum flugfélaga sem aflað er við ferðalög á kostnað skattgreiðenda. Í erindinu er forseti þingsins beðinn að svara fjórum spurningum um hvort slík notkun samræmist lögum, siðareglum og reglum um greiðslu ferðakostnaðar. FA sendi þingforseta fyrst bréf í október vegna upplýsinga um að þingmenn nýttu vildarpunkta í eigin þágu, einkum vegna

Ritstjóri
Feb 24, 2024


Útboð útfærð með það að mark-miði að útiloka Kínverja
Vatns- og fráveitustofnun Óslóar hannaði útboð vegna nýs vatnsveitukerfis í samráði við Þjóðaröryggisstofnun Noregs til að tryggja að kínverskt verktakafyrirtæki kæmi ekki að framkvæmdinni. Ástæðan var ótti við að erlend ríki, einkum Kína og Rússland, fengju aðgang að lífsnauðsynlegum innviðum borgarinnar. Þjóðaröryggisstofnun og öryggislögreglan PST hafa varað við því að slíkir aðilar geti, beint eða óbeint, nýtt sér fjárfestingar, fasteignakaup eða þátttöku í útboðum til að

Ritstjóri
Feb 14, 2023


Íslandi tryggð aðild að sameiginlegum innkaupum
Með nýrri reglugerð Evrópusambandsins og Evrópuráðsins hefur Íslandi, ásamt öðrum ríkjum EFTA, verið tryggð bein aðild að sameiginlegum innkaupum Evrópusambandsins á lyfjum, lækningavörum og öðrum mikilvægum heilbrigðisaðföngum ef heilbrigðisvá steðjar að þvert á landamæri. Ísland verður þannig virkur þátttakandi í neyðar- og viðbragðsstjórnun Evrópusambandsins (HERA) sem styrkir stöðu þess varðandi öflun, innkaup og afhendingaröryggi aðfanga þegar þjóðir þurfa að bregðast sa

Ritstjóri
Jan 11, 2023


Læst í upplýsingatækni
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur gefið út leiðbeiningar um það hvernig er hægt að komast úr læstri stöðu í opinberum samningum. Í frétt Stjórnarráðsins kemur fram að opinberir aðilar nýta hugbúnaðarkerfi og tæknivörur frá mörgum mismunandi birgjum í samræmi við útvistunarstefnu og lög um opinber innkaup. Fyrir kemur þegar líður á samningstíma, að aðilar uppgötva að þeir eru í þröngri samningsstöðu gagnvart birgjum og teljast læstir í núverandi fyrirkomulagi. Slík staða g

Ritstjóri
Sep 7, 2021
bottom of page