Útboð útfærð með það að mark-miði að útiloka Kínverja
- Ritstjóri

- Feb 14, 2023
- 1 min read
Updated: Jan 22

Vatns- og fráveitustofnun Óslóar hannaði útboð vegna nýs vatnsveitukerfis í samráði við Þjóðaröryggisstofnun Noregs til að tryggja að kínverskt verktakafyrirtæki kæmi ekki að framkvæmdinni. Ástæðan var ótti við að erlend ríki, einkum Kína og Rússland, fengju aðgang að lífsnauðsynlegum innviðum borgarinnar.
Þjóðaröryggisstofnun og öryggislögreglan PST hafa varað við því að slíkir aðilar geti, beint eða óbeint, nýtt sér fjárfestingar, fasteignakaup eða þátttöku í útboðum til að öðlast aðgang að mikilvægum innviðum. Sérstaklega er bent á að samkvæmt kínverskum lögum geti fyrirtæki verið skyldug til samstarfs við leyniþjónustu ríkisins.
Í kjölfar ábendinga frá öryggisyfirvöldum voru útboðsskilmálar settir með ófrávíkjanlegum hæfniskröfum sem útilokuðu hið kínverska fyrirtæki. Forstöðumaður þróunarmála stofnunarinnar segir ráðstöfunina löglega og nauðsynlega til að koma í veg fyrir að veikleikar eða skemmdarmöguleikar yrðu byggðir inn í kerfið.
Aðgerðirnar vöktu hörð viðbrögð kínverska sendiráðsins í Ósló, sem sakaði norsk stjórnvöld um óréttmæta markaðsstýringu og að grafa undan orðspori Noregs. Norsk yfirvöld halda hins vegar fast við að öryggi innviða krefjist þess að hægt sé að treysta öllum þátttakendum í aðfangakeðjunni.
Samkvæmt Þjóðaröryggisstofnun gæti misnotkun slíkra innviða falist í truflun á stýrikerfum eða í því að skapa vantraust á gæðum neysluvatns, sem væri áhrifarík leið til að beita pólitískum þrýstingi án hernaðarlegra aðgerða.


