top of page

Svanurinn viðurkenndur í opinberum innkaupum í Bandaríkjunum

  • Writer: Ritstjóri
    Ritstjóri
  • Feb 20, 2025
  • 1 min read

Svansvottaðar hreinlætis- og textílvörur eru nú meðal þeirra viðmiðaflokka sem viðurkenndir eru í opinberum innkaupum í Bandaríkjunum.


Svansvottaðar vörur hafa hlotið enn sterkari stöðu á alþjóðavettvangi þar sem tveir viðmiðaflokkar Svansins hafa nú verið viðurkenndir af Umhverfisstofnun Bandaríkjanna (EPA). Listinn sem Svansvottaðar vörur eru nú á er uppfærður reglulega og er markmið hans að aðstoða opinbera aðila og fyrirtæki við að finna vörur sem uppfylla strangar umhverfiskröfur.


Leiðarvísir í frumskógi merkinga

Á markaði í dag eru fjölmargar umhverfisyfirlýsingar sem hafa mismunandi merkingu og áreiðanleika. Oft getur verið erfitt að greina muninn á merkjunum og átta sig á því hvað þau standa fyrir.


„Opinberir innkaupaaðilar krefjast skýrra viðmiðunarregla til að taka upplýstar ákvarðanir og nú með Svaninn á lista, fá Svansvottaðar vörur samkeppnisforskot á bandarískum markaði,“ segir Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Svansins á Íslandi.


Einn stærsti innkaupaaðili heims

Sækja þarf sérstaklega um að fá vörur skráðar á áðurnefndan lista og hefur ferlið tekið tvö ár. Vörurnar sem nú hafa verið teknar inn á listann falla undir viðmiðaflokka fyrir textílvörur og hreinlætisvörur, en stefnt er að því að bæta fleiri viðmiðaflokkum við.


„Að við séum komin á lista Umhverfisstofnunar Bandaríkjanna sýnir enn og aftur mikilvægi þess að Svanurinn byggir á lífsferilsnálgun, herðir kröfurnar reglulega og hafi óháð eftirlit með leyfishöfum,“ segir Tormod Lien, ráðgjafi í opinberum innkaupum hjá Svaninum í Noregi.


Um er að ræða einn stærsta innkaupaaðila heims og því er þetta mikilvægt framfaraskref fyrir norræna Svaninn.

bottom of page