Skiptar skoðanir um skilmála útboðs
- Ritstjóri

- Feb 25
- 1 min read
Updated: Feb 26

Nýlega auglýsti Consensa, fyrir hönd Vestmannaeyjabæjar, eftir tilboðum um rekstur og uppbyggingu heilsuræktaraðstöðu við Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja. Um er að ræða sérleyfi sem tekur til uppbyggingar og reksturs heilsuræktaraðstöðu sem styður við markmið sveitarfélagsins um bætt heilbrigði, vellíðan og aðgengi íbúa að fjölbreyttri hreyfingu og íþróttastarfsemi.
Útboðið er auglýst í framhaldi þess að sambærilegt útboð var auglýst árið 2025 og kært til kærunefndar útboðsmála. Sveitarfélagið ákvað að afturkalla það útboð eftir að kæra var lögð fram. Í úrskurði kærunefndar í máli nr. 14/2025, sem kveðinn var upp 17. desember 2025, féllst nefndin á málsástæður kærenda, felldi útboðið úr gildi og lagði fyrir sveitarfélagið að auglýsa innkaupin á ný. Sveitarfélagið hafði þó þegar afturkallað útboðið og ákveðið að auglýsa það að nýju áður en úrskurðurinn lá fyrir.
Eftir að ákvörðun hafði verið tekin um að afturkalla útboðið gerði sveitarfélagið tímabundinn samning við World Class um leigu á aðstöðu og rekstur heilsuræktar, til að tryggja að þjónusturof yrði sem minnst, þar sem um lýðheilsumál væri að ræða.
Eftir að nýtt útboð var auglýst birti Eyjafréttir frétt 24. febrúar undir fyrirsögninni „Strangar hæfiskröfur í útboði heilsuræktar“. Þar kom fram að hæfiskröfur í hinu nýja útboði hefðu vakið athygli, meðal annars kröfur um milljarð króna í eigið fé og lágmarksfjölda virkra áskrifenda. Í kjölfarið skapaðist lífleg umræða á Facebook-síðu miðilsins um þessar tilteknu kröfur.
Málið kom jafnframt til umræðu á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja 25. febrúar, og sitt sýndist hverjum þegar málið var rætt þar.
Heimildir:
https://eyjafrettir.is/strangar-haefiskrofur-i-utbodi-heilsuraektar
https://www.vestmannaeyjar.is/frettir/baejarstjorn-vestmannaeyjar-1623-streymi


