top of page

Námskeið í samningatækni

  • Writer: Ritstjóri
    Ritstjóri
  • Jan 30
  • 1 min read

Félag atvinnurekenda og Vörustjórnunarfélag Íslands efna til námskeiðs í samningatækni 11. febrúar næstkomandi. Námskeiðið er sérsniðið að þörfum sölu- og innkaupafólks. Námskeiðið er hálfur dagur, frá kl. 9 til 12, og fer fram í fundarsal FA í Skeifunni 11.


Farið verður yfir aðferðir og undirbúning samningaviðræðna við innlenda og erlenda aðila bæði í innkaupum og sölustarfi. Fjallað verður um lykilatriði aðferða við gerð tilboða fram að lokuðum samningi. Farið verður yfir grundvallaratriði samningafræða og hvernig þau nýtast þátttakendum í daglegu starfi.


Leiðbeinandi á námskeiðinu er Thomas Möller,  hagverkfræðingur og MBA frá Háskólanum í Reykjavík. Thomas er sjálfstætt starfandi ráðgjafi og hefur verið stundakennari við HR og Háskólann á Bifröst. 


Thomas er með áratuga reynslu við stjórnun aðfangakeðja í mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins, m.a. í Eimskip, Olís, Parlogis, Innnesi og Rekstrarvörum, auk stjórnarmennsku í Símanum, Íslandspósti, Reitum og Rarik. 


Námskeiðið er sérstaklega ætlað innkaupafólki og sérfræðingum í vörustjórnun. Félögum í FA og Vörustjórnunarfélaginu býðst afsláttur af námskeiðsgjaldinu.

Skrá þarf þátttöku á námskeiðið á skraning@logistics.is.



bottom of page